154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið.

186. mál
[18:41]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Nú þarf ég að stinga djúpt til að muna nákvæmlega hvernig þetta var, en stóra myndin er þessi: Að sjálfsögðu get ég eftir á að hyggja staðið hér og sagt: Ef við hefðum haldið þjóðaratkvæðagreiðslu og niðurstöður hennar hefðu verið í einhverju samræmi við skoðanakannanir þá hefðum við að sjálfsögðu sem stjórnmálamenn, kjörnir fulltrúar hér á Alþingi sem þá voru, talið það pólitíska skyldu okkar að klára málið.

Ég met það svo að ein af ástæðum þess að þegar leið á það kjörtímabil, og síðan þegar nýtt kjörtímabil tók við og ný ríkisstjórn, þá töldu stjórnmálamenn eða stjórnarflokkar hér sig ekki þurfa að virða niðurstöðu meiri hluta þingsins, þingsályktunartillöguna, hafi m.a. verið vegna þess að þeir voru ekki með þrýsting frá kjósendum eins og hann hefði orðið annars. Það er auðvitað ekkert leyndarmál að í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, þegar Samfylkingin og Vinstri græn voru saman í ríkisstjórninni eftir hrun og mokuðu hér skít alla daga, svo það sé bara orðað eins og það var, þá voru þar ekki síst tilteknir ráðherrar Vinstri grænna sem drógu lappirnar í þessu tiltekna máli og gátu það í krafti ráðherradóms síns. Ég held eftir á að hyggja að það hefði kannski ekki verið þeim jafn auðvelt ef við hefðum haft mjög skýran lýðræðislegan vilja þjóðarinnar sem leiðarljós í málinu.