154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið.

186. mál
[18:59]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og er ljúft og skylt að leiðrétta það ef ég hef mismælt mig hér áðan. Ég átti ekki við á síðasta þingi heldur á síðasta kjörtímabili þar sem ég hlustaði á Viðreisn allt kjörtímabilið tala um að það mætti ekki tala um Evrópusambandið, að í öllum ræðum sem ekki væri hægt að fara í andsvar við værum við að tala um að það mætti alls ekki tala um Evrópusambandið, en svo var það eitt af síðustu málunum undir lok kjörtímabilsins, þá komu þau loksins með eitthvert mál tengt Evrópusambandinu sem var upptaka evru. Þannig að ég er bara fegin að röðin er þessi.

En eins og hv. þingmaður kemur inn á, og það sýnir kannski hvaða breytingar hafa orðið í stjórnmálaumhverfinu hér á Íslandi bara núna á síðustu mánuðum, þá var þetta einmitt fyrsta mál þáverandi formanns Samfylkingarinnar. En það er það ekki lengur. Nú er þetta fyrsta mál og fyrsti flutningsmaður er formaður Viðreisnar. Síðan Samfylkingin ýtti þessu máli til hliðar hefur fylgi Samfylkingarinnar samkvæmt skoðanakönnunum risið virkilega hátt og ég velti því fyrir mér hvort það séu ekki svolítið skýr skilaboð frá þjóðinni.

Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að þegar hún fór yfir það áðan talaði hún sérstaklega um sjávarútvegskaflann og landbúnaðarkaflann: Trúir hv. þingmaður því í alvöru að það séu samningaviðræður og út úr því geti bara komið alls konar hlutir ef einhvern tímann kæmi til þess að Ísland myndi vera að fara að semja við Evrópusambandið um þetta?

Nú veit ég að hv. þingmaður þekkir Evrópusambandið vel og er eldri en tveggja vetra í pólitík. Er ekki öllum orðið ljóst að þegar lönd hefja viðræður við Evrópusambandið þá eru þau ekki að semja heldur eru þau að hefja aðildarviðræður? Er þannig ekki nokkuð ljóst hvað fælist í aðild Íslands að Evrópusambandinu, að það sé sambærilegt því sem gerist hjá öðrum löndum (Forseti hringir.) sem sækja um inngöngu í Evrópusambandið?