þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið.
Herra forseti. Við höfum gert með okkur samkomulag, Viðreisn, Samfylkingin og Píratar, og við skiptumst á að bera málið uppi, að vera fremst, og núna var komið að Viðreisn. Það er nú skýringin. Það hefur enginn í Samfylkingunni lagt það til hliðar að spyrja þjóðina hvort það ætti ekki að halda áfram með aðildarviðræðurnar. Það er ekki málið sem formaður Samfylkingarinnar hefur talað um að leggja til hliðar, enda er það bara lítið skref en mikilvægt að spyrja þjóðina hvað hún vill í þessum efnum. Við sjáum á skoðanakönnunum að fylgið fer vaxandi með þessu, með því að leggja … (Gripið fram í.) — ja, það fer vaxandi með Samfylkingunni, auðvitað er ég glöð yfir því og ég sé að hv. þingmaður er skælbrosandi af ánægju líka. En fylgi þjóðarinnar fer líka vaxandi með því að fá botn í þetta mál og hún vill fá að kjósa um það og mikill meiri hluti, samkvæmt þessari nýju könnun, vill að við leggjum málið fyrir þjóðina.
Varðandi spurningu hv. þingmanns þá minnir mig að kaflarnir sem samið er um, þetta er kallað samningur, í þessum aðildarviðræðum hafi verið 14 og það var búið að loka 11. Þá stóðu þrír eftir og þar var sjávarútvegskaflinn og landbúnaðarkaflinn, sem var langt kominn, og svo man ég ekki hver þriðji kaflinn var sem tengist þessu að einhverju leyti. Þetta gerist í svona skrefum og síðan er niðurstaðan borin undir þjóðina. Það er ekki hættulegra en það.