154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið.

186. mál
[19:04]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Þetta er mikilvæg tillaga sem við ræðum hér í þingsal. Eins og kom fram hjá framsögumanni, hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur þá hefur þessi tillaga komið fram áður og sambærilegar tillögur reyndar verið fluttar af þingmönnum annarra flokka líka en eru akkúrat á tillögunni núna. Þessi tillaga er í samræmi við þjóðarviljann, þann vaxandi vilja meðal þjóðarinnar annars vegar að ganga í Evrópusambandið en hins vegar að taka þetta fyrsta skref sem er að halda áfram aðildarviðræðunum. Við erum auðvitað í þeirri stöðu, Íslendingar, að Alþingi samþykkti á sínum tíma að sækja um aðild og hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það voru stjórnmálamenn án aðkomu þingsins sem sendu bréf til Brussel og settu þær viðræður á ís en þeim hefur ekki verið slitið. Ég ætla rétt að vona það að þingmenn á Alþingi Íslendinga séu sammála um að ef Alþingi ákveður að gera eitthvað þá þurfi Alþingi sjálft að ákveða að hætta við, ekki einhverjir aðrir í þess umboði.

Núna er það þannig að það eru mjög margir sem styðja það að þetta skref sé stigið. Þrefalt fleiri vilja kjósa um aðildarviðræður við ESB en eru á móti þeim, segir í nýlegri frétt upp úr nýrri könnun Maskínu sem vitnað hefur verið hér til, það er bara ofur einfaldlega þannig. 57,3% svarenda styður þessa atkvæðagreiðslu sem er undir í tillögunni hér en 18,9% eru andvíg. Það þýðir að fjöldi þeirra sem vilja að þjóðin ráði för í málinu er þrefaldur sá fjöldi sem er andvígur því. Reyndar er það þannig að ég get vel skilið það að umræðan um aðild að Evrópusambandinu gerir það að verkum að menn skiptist í tvö horn. Þetta er auðvitað umdeilt mál, bæði meðal íslensku þjóðarinnar, rétt eins og annars staðar í álfunni. Reyndar er það nú þannig að 27 ríki Evrópu hafa ákveðið að fara í þetta samband og eru sátt í þessu sambandi. Einungis ein þjóð hefur á síðustu árum gengið úr því. Það eru Bretar og það auðvitað endaði með mjög miklum ósköpum eins og við vitum og pólitískar afleiðingar þess í Bretlandi eru hvergi nærri að baki. Einu sinni var alltaf sagt að það væri ekki hægt að ganga úr Evrópusambandinu þegar menn væru komnir þangað inn. Þetta væri þannig fullveldisspursmál í raun og veru en við erum auðvitað með nýlegt dæmi þar sem búið er að sanna hið gagnstæða.

Það er síðan þannig að þegar við tölum um aðildina sjálfa að Evrópusambandinu, óháð þessari tillögu sem hér er, þá er meiri hluti þeirra sem svara hlynntur því að ganga í Evrópusambandið, 40,2%, en 32,9% eru andvíg. Það má auðvitað gera ráð fyrir því að þeir sem ekki gefa sig upp í þessu vilji kannski gjarnan vita hvað felst í því að vera aðilar að Evrópusambandinu og fá að sjá þá einhvern samning þar að lútandi.

Þetta hefur ekki alltaf verið svona. Vilji þjóðarinnar hefur ekki alltaf verið í þessa átt og reyndar bara alls ekki. Það gerðist um sama leyti og Rússar réðust inn í Úkraínu að þessar tölur fóru að breytast. Þegar Rússar réðust inn í Úkraínu og það var allt í einu komin ný ógn inn í veruleika okkar Íslendinga, rétt eins og annarra Evrópuþjóða þá breyttist viðhorf landsmanna til þess, það vildu þá fleiri ganga í Evrópusambandið og það vildu enn fleiri taka upp þjóðaratkvæðagreiðslu til að svara þeirri spurningu hvort við ættum að fara í aðildarviðræður eða ekki. Og þetta segir okkur auðvitað bara nákvæmlega sömu sögu og blasti við Finnum, Dönum og Svíum um svipað leyti. Við þekkjum það hvernig Svíar og Finnar fóru og brugðust við stríðinu, þeir gerðu það með því að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Danir fóru í þjóðaratkvæðagreiðslu og með þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu færðu þeir varnarhluta Evrópusambandsins inn í sitt evrópska samstarf sem þeir höfðu áður verið undanþegnir, þannig að það má alveg segja að hræringarnar hér hafi verið nákvæmlega þær sömu og hjá vinaþjóðum okkar. Svo má auðvitað nefna það líka að það er mikil umræða um það í Noregi hvort samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið sé nóg fyrir Norðmenn eða hvort menn þurfi að stíga skrefið til fulls og ganga í Evrópusambandið en Norðmenn hafa reyndar tvisvar svarað þeirri spurningu í þjóðaratkvæðagreiðslu neitandi.

Þannig að þetta er allt á fleygiferð og alveg eins og hefur verið rakið ágætlega hérna þá er það ekki eitthvert risastórt skref að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhaldið. En það er mjög mikilvægt skref vegna þess að umsóknarferlið sjálft stæði styrkari fótum með það frá þjóðinni beint til stjórnmálamanna að þetta væri sú vegferð sem ætti að hefja. Þannig að það eru öll rök sem hníga að því og ég verð að segja það alveg eins og er að ég get vel skilið það að við séum ekki sammála um hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið eða ekki. Það eru margvísleg rök örugglega sem hægt er að tína til gegn aðild eins og er hægt að tína til rök með aðild. En ég fæ það ekki til að ganga upp í mínum þykka haus að það sé einhver sérstök hugmynd að leggjast gegn þessari tillögu því við erum einfaldlega að leggja það til að þessi rembihnútur sem íslensk pólitík hefur verið föst í áratugum saman rakni upp með tilstilli íslensku þjóðarinnar. Þetta er akkúrat mál sem hentar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er mál sem hefur áhrif á stöðu okkar í alþjóðasamfélaginu. Þetta er mál sem mögulega sker úr um það hvar við ætlum að setja okkur í sveit með nágrannaþjóðum okkar, með öðrum þjóðum í Evrópu. Þetta er mál sem hefur áhrif á lífskjör hér, alla atvinnuvegi landsins og þar fram eftir götunum og þetta er mál sem deilt hefur verið um í íslensku samfélagi í áratugi án þess að þjóðin hafi nokkru sinni fengið að segja hug sinn.

Það er nefnilega svo að það er miklu blessunarríkara að íslenska þjóðin fái að ákveða framhaldið frekar en Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin, Viðreisn, Píratar, Flokkur fólksins eða hvaða flokkar sem það nú eru. Mér finnst það vera algerlega einboðið að hefja þessa vegferð. En ástæðan fyrir því að ég er Evrópusinni er sú að ég tel að með aðild að Evrópusambandinu þá myndi brotna upp þessi íslenski fákeppnismarkaður sem við Íslendingar erum fastir í á svo mörgum sviðum. Það var komið ágætlega inn á þetta í ræðu flutningsmanns tillögunnar hér áðan. Bankamarkaðurinn var nefndur og tryggingamarkaðurinn og það má alveg bæta við matvörumarkaðnum og öðru. Það er umhugsunarefni að engir erlendir aðilar vilji hasla sér völl þrátt fyrir að engar hindranir séu á því að menn komi hér og veiti íslenskum fyrirtækjum samkeppni. Þar vitum við að íslenska krónan er hindrun. Íslenska krónan er helsta hindrunin fyrir því að erlend fyrirtæki komi hingað til þess að auka samkeppni á íslenskum mörkuðum og nýleg dæmi sanna það svo sannarlega að við Íslendingar gætum vel notað samkeppni að utan okkur til hagsbóta.

Síðan má auðvitað nefna það líka að við erum að horfa á hátt vaxtastig og háa verðbólgu. Við erum með miklu hærri vexti hér þrátt fyrir sambærilega eða lægri verðbólgu í Evrópu. Mér finnst þetta vera mikið umhugsunarefni. Ég get vel skilið það að menn vilji ekki ganga í Evrópusambandið þótt ég sé ósammála þeim, en ég get ekki skilið það að menn sjái einhvern sérstakan hag í því eða sérstakan kost fyrir íslenskt samfélag að vera með minnsta gjaldmiðil í heimi sem nýtur engrar virðingar í alþjóðasamfélaginu, sem þykir vera aðgangshindrun hingað inn á markaðinn. Gjaldmiðill sem gerir það að verkum að meiri hluti forsvarsfólks nýsköpunarfyrirtækja telur að það séu neikvæð áhrif af krónunni á fyrirtæki sín eins og kemur fram í könnun sem sagt er frá á vefmiðlum, og hún er ekki mjög gömul þessi könnun. Þar kemur fram að 73% þeirra sem eru spurðir og reka íslensk nýsköpunarfyrirtæki telja að séríslenskur gjaldmiðill hafi neikvæð áhrif á rekstur nýsköpunarfyrirtækja hér á Íslandi. Þetta eru örfá af þeim rökum sem tína mætti til fyrir því að við Íslendingar eigum að taka upp fulla aðild að Evrópusambandinu. En auðvitað gengur tillagan hér ekki svo langt, eins og við þekkjum.

Mig langar líka að nefna það sem gerðist í kringum kosningarnar 2013. Þá var það þannig að stjórnmálamenn, Illugi Gunnarsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Ragnheiður Elín Árnadóttir, Kristján Þór Júlíusson og Bjarni Benediktsson, sem nú er formaður Sjálfstæðisflokksins, sögðu öll með skýrum hætti fyrir þær kosningar að það ætti að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald viðræðna við Evrópusambandið. Þetta var svikið skömmu eftir kosningarnar. Mér finnst þetta sýna það svart á hvítu að menn eru tilbúnir til að ganga ansi langt til þess að láta þrönga sérhagsmuni flokka sinna ganga framar þjóðarhag. Menn eru meira að segja tilbúnir til þess að svíkja mjög ber og einbeitt loforð um hið gagnstæða strax að loknum kosningum. Það eru öll rök sem hníga að því að þessi tillaga verði samþykkt hér á þinginu. Mig langar líka aðeins í blárestina að nefna (Forseti hringir.) að við eigum ekki bara að spyrja okkur að því hvað við getum fengið út úr Evrópusamvinnunni heldur eigum við líka að velta því fyrir okkur hvað við getum lagt til hennar.