þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Hér hefur verið farið yfir víðan völl í þessari stóru og, getum við sagt, ára og áratuga umræðu um aðildarumsóknir okkar mögulegar að Evrópusambandinu. Það sem helst stendur upp úr að mínu mati í þessu er að gjaldmiðillinn, evran, væri hagfelldari og betri fyrir okkur en íslenska krónan. Nú hef ég hlustað eftir því sem hér hefur verið sagt í dag og marga aðra daga á mörgum ólíkum tímum og árum og áratugum. Ég skal alveg viðurkenna að ég var voðalega svag fyrir hugmyndinni um inngöngu í Evrópusambandið þegar ég var yngri. Eldri og reyndari og að sumra mati kannski örlítið vitrari þá hef ég mínar efasemdir og ég ætla að telja upp nokkrar ástæður fyrir þeim efasemdum.
Í fyrsta lagi tel ég okkur búa yfir slíkri gæfu og slíku ríkidæmi í fjölmörgum helstu atvinnugreinum okkar að við búum í rauninni yfir því sem flestar þjóðir öfunda okkur af. Það er fiskurinn, það er græna orkan, það er eldið sem við erum komin vel af stað með og stefnir í að verða jafn verðmætt og kvótinn margumdeildi. Það er vatnið, gull framtíðarinnar, segja sumir. Það eru landgæðin, það er ferðaþjónustan og allt þetta. Mínar áhyggjur ef nokkrar myndu snúast frekar um það hvort okkur bæri ekki að standa alveg sérstakan vörð um þessi ómetanlegu gæði og þessi verðmæti okkar, að hleypa ekki að þeim gírugum fulltrúum annarra landa sem búa ekki yfir þessum gæðum en myndu gjarnan vilja gera það.
Svo hefur mér í vaxandi mæli fundist inngrip Evrópusambandsins hér í okkar mál og okkar hag vera tortryggileg, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Ég er nú kannski með síðustu ræðuna hér í dag ef frá eru taldar einhverjar athugasemdir eða fyrirspurnir, alveg eins og ég var með síðustu ræðuna hér í störfum þingsins fyrr í dag þar sem ég vék að þessum málum sem ég vissi að væru á dagskrá, og ég leyfi mér núna að ræða aðeins um störf Evrópuþingsins. Þau eru um margt ansi ólík okkar störfum. Þar eru 703 þingmenn, að mig minnir. Við erum með 63 duglega þingmenn og ráðherra, framkvæmdarvald, ráðuneyti, starfsfólk hér í þessu húsi og nærliggjandi húsum, allir önnum kafnir við það að skrifa ný lög, ný frumvörp og skálda inn í framtíðina hvað verða má og verða vill og allt er þetta hengt um hálsinn á þegnunum því obbinn af þessu kostar og sumt heilmikið. Í Evrópuþinginu eru þessir 703 í óða önn að skrifa og skrifa og svo taka við einhverjir 30.000 ofvirkir embættismenn sem gera úr þessu frumvörp og tilskipanir, eins og ég gat um fyrr í dag, 650 af þeim þurfum við að taka inn og meðtaka og leiða hér í gildi og lög. 2.100 yrðu þær tilskipanir ef við gengjum í Evrópusambandið. Ég sé nú ekki alveg að í þeim nefndum sem ég sit í, sem eru fjórar, myndum við gera mikið meira en að bara afgreiða á færibandi 2.100 tilskipanir á hverjum þingvetri.
Ég velti fyrir mér þeim sem þar hafa verið að hafa vit fyrir okkur, Grikkir og Spánverjar og Ítalir og einhverjir sem hafa sterkar skoðanir á því sem okkur á að vera fyrir bestu. Ég dreg það bara í efa að það fólk hafi meiri og betri burði en við sjálf til að ákveða hvernig hag okkar hér við endimörk hins byggilega heims er best borgið, hvernig atvinnulífi og stöðlum skuli fyrir komið. Ég velti líka fyrir mér: Hvar voru þessir góðu vinir okkar í Evrópska efnahagssvæðinu þegar illa fór hjá okkur 2008? Hvernig reyndust þeir vinir í raun? Færeyingarnir voru á sínum stað og Rússarnir. Hvar var gamla herraþjóðin, Danirnir, og gömlu nágrannarnir í Bretlandi? Ég vil helst ekki fara nánar út í að rifja það upp.
Ég er hins vegar búinn að koma hér í ræðustól og vera nánast rekinn til baka með það sýnishorn af þeim þjóðarauði sem ég tel að okkur beri að standa vörð um. Það var þjóðarsauðurinn litríki. Ég vona að ég megi nefna hann á nafn, með leyfi forseta. Þar teiknaði ég upp þjóðarsauð í ýmsum litum sem táknmynd allra þeirra verðmæta og auðlinda sem við búum að og sem ég óttast að margir vilji nú fá sneið af, væna flís af feitum sauð. Við sjáum það í ýmsu sem hér hefur borið á góma og ég velti líka fyrir mér og kallaði eftir því, ég hef ekki fengið eina einustu línu um það sem ég bað um fyrr í dag, að mér yrði bent á hvaðan Evrópusambandinu kemur sá réttur að leggja á okkur öll þau gjöld og allar þær álögur sem fram undan eru í tugum milljarða talið vægast sagt, kann það að vera tengt öðrum samningum sem við höfum gert, Kyoto, París eða hvað það heitir. En mér finnst þeir vera orðnir fullfrekir til fjörsins þarna úti í Brussel og mér finnst að við séum ekki betur sett í svona sirka 70–80% tilfella. Persónuverndarlögin eins og þau voru matreidd hingað og sett hér á borð fyrir okkur — ég hefði ekki látið mér detta í hug að skrifa upp slíka rullu hér fyrir okkur á litla Íslandi. Þau eru miðuð við allt aðrar aðstæður, allt annars konar samfélag en okkar, en við verðum að kokgleypa þau með öllum þeim flækjufótum og tilskipunum sem fylgja. ETS-gjald upp á tugi milljarða mun skerða möguleika okkar til að láta ferðaþjónustuna blómstra áfram, mun skerða möguleika okkar til að vera þessi millilendingarvöllur sem Keflavík hefur orðið og hugsanlega fleiri í framtíðinni á Íslandi, menn munu frekar sækja til Bretlands til að geta skotist með ódýrustu flugunum yfir til annarra heimsálfa. Nú er Schengen-gjald og skipagjald á leiðinni og við erum satt að segja á Íslandi með alveg nóg af gjöldum, álögum, sköttum og útsvörum og skyldum að við förum ekki að láta fleiri þjóðir setja okkur slíkt fyrir. Eitt okkar stærsta vandamál kannski er hvað lítið af mánaðarlaunum verður eftir í vasanum hjá launþeganum. Það er búið að kroppa svo mikið af. Sé ferðaþjónustan okkar mesti blómi í atvinnulífi og tekjusköpun í dag þá skulum við stemma stigu við hvers konar inngripum þar af grískum, ítölskum og spænskum embættismönnum og Evrópuþingmönnum.
Ég held að við eigum stóra möguleika á því að styrkja þennan smæsta gjaldmiðil í heimi eins og hann er iðulega kallaður hér. Hann styrktist nú aðeins fyrir tveimur vikum þegar hugvit frá Ísafirði, þorskroð frá Ísafirði í plástursformi, var úthugsað, uppfundið, markaðssett og síðan selt fyrir 180 milljarða. Þá lyftist íslenska krónan upp og dollarinn fór úr 133 í 129. Það var í tvær vikur einhverra hluta vegna. Ég er alltaf að velta fyrir mér: Hvers vegna er íslenska krónan höfð svona veik þegar litríki, arðbæri þjóðarsauðurinn blasir við í öllum sínum myndum og arðbæru möguleikum?
Ég er sem sé búinn að hlusta í allan dag, bæði í gegnum útvarp, sjónvarp og hér inni í sal, og ég hef ekki enn þá séð ljósið, hef ekki enn þá séð fleiri kosti en galla á því að gefa þessum hinum sömu fjarlægu þegnum frekari völd en þeir þegar hafa yfir okkur.