154. löggjafarþing — 7. fundur,  20. sept. 2023.

Störf þingsins.

[15:15]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég velti fyrir mér í dag hvort við séum fórnarlömb eigin velgengni. Það blasa við okkur staðreyndir, annars vegar þær sem björguðu okkur efnahagslega eftir hrunið, sem er hinn stórglæsilegi geiri ferðaþjónustunnar sem hefur fært okkur áður óþekkt verðmæti á tiltölulega skömmum tíma og ég hef vikið að því áður. Ég ætla að minna aðeins á það aftur að við erum orðin ótrúlega eftirsóttur og stórglæsilegur skemmtigarður fyrir milljónir manna og það mun að óbreyttu halda áfram að vaxa frá ári til árs. En slíku fylgir ábyrgð. Skemmtigarðar sem rækta ekki garðinn nægilega, huga ekki nægilega að innviðum sínum og öryggi, verða smám saman álitnir hættulegir og ekki æskilegir til að heimsækja.

Nú stöndum við frammi fyrir því að allur sá búhnykkur sem hlotist hefur af ferðaþjónustunni einkum og sér í lagi valdi þeirri þenslu í samfélaginu sem síðan birtist okkur í vöxtum og verðbólgu og einkum þó því að við megum ekki gera það sem við þurfum að gera sökum þess að það hefur þau neikvæðu áhrif á hagkerfið sem oft er rætt um. Ég segi: Við verðum að finna leiðir. Ég hef nefnt leiðina og hugmyndina um lestina milli Reykjavíkur og Keflavíkur. Það er hægt að fjármagna innviði með erlendu fé sem greiðir síðan fyrir þá sem nota viðkomandi innviði, svipað og með Spöl. Þar voru það t.d. 1.000 kr. á hvern sem fór í gegnum göngin nema þá sem bjuggu á Akranesi, það voru 200 kr. Slíkt kerfi er til umræðu núna.

Það sem ég vildi einkum og sér í lagi tala um er að við getum ekki frestað innviðaframkvæmdum á þeim öryggisþáttum sem blasa við okkur. Það eru þúsundir óbyggðra íbúða, þúsundir óbyggðra hjúkrunarrýma og þúsundir óbyggðra rýma fyrir leikskóla og fleira. (Forseti hringir.) Við verðum að finna leið í hagkerfinu og ég held að við verðum að sameinast um (Forseti hringir.) að styrkja íslensku krónuna með ráðum og dáð. Um hana var stundum sagt að fjármálaráðherra hvers tíma héldi um skjálfandi hönd stórútgerðarinnar og stýrði genginu. (Forseti hringir.) Það er ekki svo í dag en gengið er of veikt miðað við alla þá þætti sem blasa við.