Störf þingsins.
Forseti. Það getur verið snúið að ala upp börn. Hér áður fyrr þótti það prýðisgóð uppeldisaðferð að setja boð og bönn og svara svo bara með vænu vandarhöggi þegar þeim var ekki fylgt. Í dag er þetta aðeins flóknara. Búið er að sýna fram á að refsingar eru gagnslítil aðferð til að kenna börnum muninn á réttu og röngu og yfir höfuð til að stýra hegðun þeirra til frambúðar. Uppeldisaðferðir nútímans ganga út á virðingu fyrir persónuleika barns, þroska þess, að það sé nálgast með því viðhorfi að barnið langi til að læra og fá umbunina sem felst í því að vera frábær manneskja og allt gangi betur ef gluggað er í ástæður þess að barnið hagar sér ekki eða bregst við eins og best væri á kosið. Þetta er ekki einungis álitið mannúðlegri aðferð til að nálgast barnauppeldi heldur hefur verið sýnt fram á það að hin skilningsríka nálgun að leita uppi rót vandans er mun líklegri til að hafa áhrif á bæði hugarfar barnsins og hafa bein áhrif á hegðun þess til lengri tíma litið. Jafnvel umbunarkerfi sem var á einhverjum tímapunkti ný kynslóð uppeldisaðferða nýtur nú minni hylli enda getur það að umbun sé ekki veitt hæglega haft yfirbragð refsingar ef ekki er rétt að farið. Þetta er vandmeðfarið en flestum þeim sem þekkja til ber þó saman um það að í dag eru einföld boð og bönn og refsingar, hvað þá líkamlegar refsingar, úrelt uppeldisaðferð.
Refsing er ákveðin tegund ofbeldis. Í henni felst valdbeiting, nauðung, jafnvel líkamleg nauðung, með því að loka fólk inni, og sums staðar er líkamlegu ofbeldi jafnvel beitt sem refsingu þrátt fyrir að við vitum betur, að ofbeldi sé gagnslítil og vond leið til þess að leysa ágreining eða stýra hegðun fólks — þetta vitum við. Ég ætla ekki að útiloka að við séum enn á þeim stað að stundum sé einhvers konar valdbeitingar þörf til að stýra hegðun fólks, barna eða annarra, t.d. til þess að vernda annað fólk eða fólk gegn sjálfu sér líkt og við gerum í samfélaginu. (Forseti hringir.) En það gerist þegar önnur úrræði þrýtur, þegar við sjáum ekki aðra lausn. Stundum er það þannig. (Forseti hringir.) En eitt ættum við að vera búin að læra og mættum e.t.v. minna okkur oftar á þegar við leitumst við að leysa ágreining um vandamál, persónuleg eða samfélagsleg: (Forseti hringir.) Ofbeldi, valdbeiting og refsingar eru ekki úrræði heldur úrræðaleysi.