154. löggjafarþing — 7. fundur,  20. sept. 2023.

ættliðaskipti og nýliðun í landbúnaðarrekstri.

52. mál
[15:52]
Horfa

Flm. (Birgir Þórarinsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir alveg ágætisinnlegg inn í þessa umræðu. Það er alveg tilefni til að minnast á það að á jörðum er ýmis rekstur sem tilheyrir fjölskyldum, eins og hv. þingmaður nefndi réttilega, ferðaþjónustan, skógræktin o.s.frv. Í mörgum tilfellum eru þar heilmiklar eignir undir þegar kemur að því að yngri kynslóðin á að fara að taka við og verðmætin orðin svo mikil að það getur orðið erfitt fyrir þá sem það vilja gera. Nýliðunin getur orðið erfið vegna þess að viðkomandi ræður ekki við þær afborganir eða greiðslur sem þarf að reiða af hendi til að taka slíkan rekstur að sér. Því á þessi athugasemd svo sannarlega vel við. Þessi tillaga lýtur að landbúnaðinum sem slíkum, ekki síst vegna þess að það varðar auk þess fæðuöryggi þjóðarinnar að jarðir verði áfram í búrekstri. Það sem við erum að horfa fram á í þeim efnum er að í sumum tilfellum eru búin orðin mjög stór, mikil verðmæti liggja þar undir og kostnaðarsamt er fyrir þá yngri að taka við, eins og ég nefndi hér áðan, og í sumum tilfellum nánast ógerlegt. Tillagan gengur einmitt út á það, að finna leiðir til að auðvelda þessa nýliðun og þessi ættliðaskipti. Í dag er þetta þannig að ef viðkomandi sem heldur jörðina ætlar t.d. að selja syni sínum hana á einhverju sérstöku verði, sem er lægra heldur en markaðsverðið, þá hefur skatturinn skilgreint það sem gjafagerning. (Forseti hringir.) Það eru þarna réttilega hindranir í veginum sem ég hefði viljað sjá rutt burt, af því að hv. þingmaður spurði sérstaklega um þær.