154. löggjafarþing — 7. fundur,  20. sept. 2023.

fæðingar- og foreldraorlof.

11. mál
[17:08]
Horfa

Flm. (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Auðvitað er ekkert klappað í stein í fæðingarorlofslöggjöfinni og ég held að það mætti alveg skoða hvort þetta sé endilega sú prósenta sem eigi að vera lögð til grundvallar sem skilyrði fyrir því að námsmenn geti fengið fæðingarstyrk námsmanna. Ég held að það allra mikilvægasta núna sé að hækka bæði fæðingarstyrk fyrir fólk utan vinnumarkaðar, sem einmitt nær þá til þeirra sem ná ekki þessu hlutfalli, og hækka fæðingarstyrk námsmanna vegna þess að þetta eru smánarlegar fjárhæðir eins og er. Ég minnist þess að fyrir síðustu alþingiskosningar þá lofaði Sjálfstæðisflokkurinn því að hækka fæðingarstyrk námsmanna. Ég hvet flokkinn eindregið til að efna það loforð sem allra fyrst og láta ekki þessar fjárhæðir rýrna að raunvirði.

Annars hlakka ég til, eins og kom fram áðan, að fylgja þessu betur eftir innan velferðarnefndar og þá held ég að það mætti einmitt skoða atriði eins og hv. þingmaður minntist hér á. Raunar held ég að það séu ýmsar gloppur í fæðingarorlofslöggjöfinni sem ekki er tekið á í þessu frumvarpi og að löggjöfin öll þarfnist frekari rýni, þá sérstaklega t.d. gagnvart fólki sem hefur búið erlendis, komið aftur til Íslands, nær ekki þessum viðmiðum o.s.frv. Það er þetta samspil milli þeirra sem eru í námi, hafa verið í vinnu en ekki alveg nógu marga mánuði til að falla undir — það eru alls konar atriði sem ég held að mætti skoða betur í fæðingarorlofslöggjöfinni okkar.