154. löggjafarþing — 8. fundur,  21. sept. 2023.

athugun Samkeppniseftirlitsins og samningur við matvælaráðuneytið.

[10:32]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Úrskurðarnefnd samkeppnismála hefur komist að því með mjög afgerandi hætti að samkomulag eða verktakasamningur milli matvælaráðuneytisins og Samkeppniseftirlitsins sé ólögmætur og gerir ýmsar athugasemdir við hvernig að þessu var staðið og hugmyndina um að fara fram með þeim hætti sem þar var lagt upp með. Þegar hefur komið fram að Seðlabankinn, sem einnig var reynt að draga inn í málið, virtist ekki hafa hugmynd um til hvers væri ætlast af honum eða hlutverk bankans í þessu bixi öllu. En eftir standa margar spurningar, sérstaklega varðandi áform hæstv. matvælaráðherra um að beita fyrir sig sjálfstæðri ríkisstofnun, Samkeppniseftirlitinu, í þessu máli. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Páll Gunnar Pálsson, hefur haldið því fram að hann hafi átt frumkvæðið að þessari athugun, þessari ólögmætu ráðstöfun. Hins vegar kemur skýrt fram í gögnum málsins, eins og birtist fyrst í Morgunblaðinu, að frumkvæðið hafi komið frá ráðherranum, frá matvælaráðuneyti.

Því spyr ég einfaldlega hæstv. matvælaráðherra: Hvað er satt í þessu? Hvor átti frumkvæðið að samkomulaginu ólögmæta, hæstv. matvælaráðherra eða forstjóri Samkeppniseftirlitsins? Og mun hæstv. ráðherra draga einhvern lærdóm af þessu máli? Því að eins og kemur líka fram í gögnum málsins var litið á þetta sem svokallað „pilot“-verkefni, þ.e. verkefni sem ætti að verða framhald á, framhald á því að ráðherrann gæti beitt fyrir sig ríkisstofnunum sem einhvers konar pólitískum einkaherdeildum sínum, nokkuð sem ótvírætt er slegið niður í úrskurði úrskurðarnefndarinnar.