154. löggjafarþing — 8. fundur,  21. sept. 2023.

athugun Samkeppniseftirlitsins og samningur við matvælaráðuneytið.

[10:35]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Því er til að svara að þegar mitt ráðuneyti hefur undirbúning á stefnumótun í sjávarútvegi í samræmi við stjórnarsáttmála þá var gagnsæið mjög mikilvægt atriði og ég vænti þess að hv. þingmaður sé mér sammála um mikilvægi gagnsæis í þessum atvinnuvegi, rétt eins og öðrum í samfélaginu. Kortlagning á stöðu stjórnunar og eignatengsla var talin mikilvægur þáttur í því. Þegar ráðuneyti mitt hafði samband við Fiskistofu og Samkeppniseftirlitið þá hafði eftirlitið þegar ráðgert að ráðast í slíka athugun. Hins vegar kom fram hjá stofnuninni að vegna fjárskorts væri ekki ljóst hvenær sú athugun gæti hafist og þess vegna var ákveðið að ráðstafa þeim fjármunum sem fyrir lágu í ráðuneytinu til verksins til Samkeppniseftirlitsins með sérstökum samningi, enda er ráðuneytum auðvitað heimilt að gera samninga á grundvelli laga um opinber fjármál, eins og hv. þingmanni er kunnugt um. Það var auðvitað leitast við að þessi athugun gæti nýst fleiri eftirlitsstofnunum og auk þess var lögð áhersla á að það væri hægt að byggja upp upplýsingatæknigrunn þannig að upplýsingar yrðu fyrirliggjandi í rauntíma. Af því að hv. þingmaður talar um lærdóm þá liggur fyrir að það er mikilvægt að það verði ráðist í úttekt sem þessa og það er skýrt að Samkeppniseftirlitið ætlar að gera það eftir sem áður. Krafa um aukið gagnsæi í sjávarútvegi er hávær meðal almennings og ég tel að það sé gríðarlega mikilvægt að auka gagnsæi og þar með að skapa aukin og bætt skilyrði fyrir traust milli sjávarútvegs og samfélagsins.