154. löggjafarþing — 8. fundur,  21. sept. 2023.

athugun Samkeppniseftirlitsins og samningur við matvælaráðuneytið.

[10:37]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Það hljómar einfaldlega ekki trúverðugt að þetta hafi gerst á sama tíma, eða nokkurn veginn, að hæstv. ráðherra hafði fengið þessa hugmynd, þessa furðulegu hugmynd um að beita fyrir sig Samkeppniseftirlitinu og þá hafi Samkeppniseftirlitið þegar verið búið að fá akkúrat þessa hugmynd; vildi bara svo vel til að þegar ráðherrann hafði samband þá var Samkeppniseftirlitið einmitt búið að vera að velta því fyrir sér að fara í þessa aðgerð sem hefur reynst ólögmæt og fráleit. En bæði hæstv. ráðherra og Samkeppniseftirlitið fengu engu að síður þessa ólögmætu hugmynd nokkurn veginn á sama tíma. Þetta er ekki trúverðugt, herra forseti. Svo er kastað fram einhverjum orðum eins og gagnsæi. Hvað gagnsæi var í þessari ákvarðanatöku, í þessari ráðstöfun, eða í ákvörðun varðandi hvalveiðar eða önnur þau stjórnsýslumál sem hafa vakið stórar spurningar hjá hæstv. ráðherra að undanförnu? Og hvað finnst hæstv. ráðherra um afstöðu Samkeppniseftirlitsins núna? Mér heyrist hæstv. ráðherra fagna því að Samkeppniseftirlitið ætli að láta eins og ekkert sé (Forseti hringir.) og halda áfram eins og þessi úrskurður hafi aldrei birst.