154. löggjafarþing — 8. fundur,  21. sept. 2023.

athugun Samkeppniseftirlitsins og samningur við matvælaráðuneytið.

[10:38]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég árétta það að ég held að það sé mjög mikilvægt að þessari úttekt verði haldið áfram og er ósammála hv. þingmanni um að það sé furðuleg hugmynd að auka gagnsæi í sjávarútvegi. (Gripið fram í.) Ég held að það hljóti að vera eftirsóknarvert og mikilvægt fyrir samfélagið og það er sérkennilegur málflutningur að leggja áherslu á það að koma í veg fyrir það að ljósin séu kveikt (Gripið fram í.) í þessum efnum vegna þess að það er auðvitað afar mikilvægt fyrir greinina sem slíka, fyrir samfélagið og fyrir aukið traust á greininni, fyrir aukna samstöðu í samfélaginu um þessa mikilvægu atvinnugrein að gagnsæið sé aukið. Ég tel að það sé heppilegt að fjárlagafrumvarpið sé nú til meðferðar hjá Alþingi því að það kann að vera að þingið sjái tilefni (Forseti hringir.) til þess að efla grunn Samkeppniseftirlitsins til að stofnunin geti sinnt mikilvægum verkefnum eins og þessu.