eftirlit með sjókvíaeldi.
Hæstv. forseti. Það berast vondar fréttir úr sjókvíaeldi. Þúsundir eldislaxa sluppu úr kví í Patreksfirði þegar á kom stórt gat, eða fleiri en eitt gat, og vöktun hafði ekki verið tilhlýðileg. Afleiðingarnar láta ekki á sér standa: Eldislaxar ganga upp í ár í stórum stíl og eru farnir að para sig við villta laxinn. Það eru hörmulegar fréttir fyrir lífríki Íslands og fjölbreytileika þess og villti laxastofninn gæti verið í mikilli hættu. En það dapurlegasta við þessar fréttir er það, forseti, að þær eiga ekki að koma neinum á óvart vegna þess að þetta stóð allt í skýrslu Ríkisendurskoðunar sem var hér til umfjöllunar í upphafi þessa árs og skilað var um samhljóða áliti frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þar sem nefndin var í raun sammála um að taka undir allar ábendingar Ríkisendurskoðunar, enda sagði ríkisendurskoðandi að lagaframkvæmd, stjórnsýsla og eftirlit með sjókvíaeldi væri í molum. Það er auðvitað þannig að hömlulaus vöxtur atvinnugreinar, í hlýjum faðmi ráðherra Sjálfstæðisflokksins til skamms tíma, hefur verið án tilskilins eftirlits, lagaumgjarðar og auðlindarentu og það hlaut að leiða til þess.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra af þessu tilefni: Til hvaða aðgerða hefur hún gripið í sínu ráðuneyti? Tvennt skiptir kannski mestu máli hér. Það er endurskoðun burðarþolsmatsins og þá vonandi þannig að Hafrannsóknastofnun þurfi ekki að sækja um fjármagn til þess í samkeppnissjóði, og svo sjálft áhættumatið á erfðablönduninni. Það gæti verið að verða óafturkræfur skaði. Það hefur reyndar verið varað við honum mjög lengi. Hvernig ætlar ráðherra að koma í veg fyrir að sá skaði verði með þeim hætti að við séum að hætta á útrýmingu villtra laxastofna við strendur Íslands?