eftirlit með sjókvíaeldi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er auðvitað þyngra en tárum taki að þessi viðburður í raun og veru standi yfir, þ.e. að strok verði af þeirri stærðargráðu sem við erum hér að sjá. Ég verð þó að segja við þetta tilefni að hér er um að ræða ýmsar ákvarðanir eftirlitsstofnana og annarra aðila sem eru sumar hverjar kæranlegar þannig að ég get ekki tjáð mig um þessi atvik sem hér eru að eiga sér stað. En ég verð hins vegar að segja að ábyrgð rekstraraðilanna er mikil. Mér finnst það skipta mjög miklu máli í því ljósi að við verðum að geta treyst því að bæði innra eftirlit og ytra eftirlit sé með þeim hætti að það sé viðunandi. Frá því að ég kom í ráðuneytið hef ég tekið þessi mál mjög alvarlega, enda eru strok af þessu tagi óásættanleg umhverfisslys. Við eigum ekki að normalísera þau, við eigum ekki að segja: Þetta er eitthvað sem hlýtur að gerast. Eldislaxar eiga að vera í kvíum og þeir eiga ekki að vera í kvíum með götum og rekstraraðilinn hverju sinni ber ábyrgð á því að tryggja það. Ég skipaði sérstakan starfshóp á síðasta ári sem hafði það hlutverk að fara yfir regluverkið hvað þetta varðar og hann lagði til úrbætur sem að hluta til hafa verið innleiddar, aðrar sem verið er að vinna með í heildarendurskoðun á lögum um fiskeldi sem mun koma til afgreiðslu þingsins nú í vetur. Það er alveg ljóst að við viljum ekki sjá slys af þessu tagi hér á landi og það er ekki glæsileg framtíðarsýn að það séu froskmenn með skutulbyssur að sulla í ám hér fram eftir hausti. Það er ekki það sem við viljum sjá. En ég hef lagt (Forseti hringir.) það til við Alþingi í gegnum fjárlagavinnu að fjármunum verði beint bæði til Hafró og til Fiskistofu til að bæta það eftirlit sem hér er nauðsynlegt.