154. löggjafarþing — 8. fundur,  21. sept. 2023.

eftirlit með sjókvíaeldi.

[10:44]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég fagna því að það eigi að veita meira fé til eftirlits með þessari atvinnugrein. Ekki veitir af. Að sjálfsögðu bera fyrirtækin ábyrgð, að sjálfsögðu, en mesta ábyrgð bera stjórnvöld sem skapa lagarammann og regluverkið með þessari atvinnugrein og það verður alltaf að horfa á það fyrst og fremst. Um það fjallaði skýrsla Ríkisendurskoðunar sem var hér til umfjöllunar á vormisseri. Við megum ekki láta það gerast að hér verði óafturkræfur skaði og við verðum að horfast í augu við það að allar ábendingar í skýrslu Ríkisendurskoðunar og allt sem sagt hefur verið um hættuna sem getur stafað af atvinnugreininni fyrir lífríki landsins stendur heima. Það er ekkert nýtt í þessu, forseti. Við verðum hreinlega að horfast í augu við það. Og við þurfum líka að horfast í augu við það, og það er þá kannski seinni spurning mín til hæstv. ráðherra, að það sé orðið tímabært að loka kvíunum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)