eftirlit með sjókvíaeldi.
Virðulegur forseti. Rétt eins og oft þegar um er að ræða atvik af stærðargráðu sem þessari þá er tvennt sem er undir, það eru annars vegar viðbrögð til skemmri tíma og hins vegar stefnumótun og viðbrögð til lengri tíma. Af því að hv. þingmaður spurði sérstaklega um áhættumatið í sinni fyrri spurningu þá er í gildandi lögum sérstaklega talað um að endurskoða beri áhættumatið svo oft sem þurfa þykir. Ég held að það sé algjörlega fyrirliggjandi að sú þörf er raunveruleg núna. Áhættumatið á auðvitað að endurspegla raunveruleikann en ekki einhverjar hugmyndir um raunveruleikann. Eins og hv. þingmaður kemur ítarlega að í sínum fyrirspurnum hér þá er að koma á daginn það sem mörg okkar óttuðust, að grundvöllurinn er þannig að það er full ástæða til að taka til við endurskoðun á áhættumati.