aðgerðir stjórnvalda vegna fíknisjúkdóma.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir þessa fyrirspurn. Hann snertir á fjölmörgum þáttum þegar kemur að því að sinna þessum hópi sjúklinga og meðferðum og jafnframt því hver fórnarkostnaðurinn er af því að gera ekki meira, og samhenginu við umferðarslys. Þar ætla ég kannski að byrja. Hv. þingmaður kemur inn á það að í vor, má segja, var umræða hér á þingi og samfélagið og við hér — við í ríkisstjórn tókum ákvörðun um að skera upp herör gagnvart þessum skaðvaldi sem felst í ópíóíðum og ópíóíðanotkun og vísbendingum um að það sé faraldur í gangi. Sannarlega fórum við af stað með áætlun í þeim efnum og ég get alveg sagt hér að við rákum okkur á það við að fara í gegnum þetta að tölur og gögn þurfa að liggja fyrir og við þurfum reglubundið að safna tölum og gögnum þegar við erum að setja fram í umræðunni hvað raunverulega er í gangi. Auðvitað heldur landlæknir utan um tölur en við erum líka að fara af stað með, sem hluta af þessari aðgerðaáætlun, bæði fjármagn sem er búið að samþykkja í ríkisstjórn og að taka höndum saman við meðferðaraðila og SÁÁ. Sjúkrahúsið á Vogi er partur af því. Það samtal á að fara fram í gegnum Sjúkratryggingar og stendur til í tengslum við aðra samninga. Það er fjölmargt sem er inni í þessari aðgerðaáætlun (Forseti hringir.) og það er fjármagn inn í það, ég skal reyna að koma inn á það. En þetta er auðvitað stórmál og fjölmörg atriði sem þarf að koma inn á í þessari umræðu.