Hjúkrunarrými og heimahjúkrun.
Virðulegi forseti. Mig langar að hefja þessa sérstöku umræðu í dag á að vitna til orða konu sem mætti á fund Samfylkingarinnar um heilbrigðismál í vetur, því að mér fannst hún kjarna stöðuna svo vel, með leyfi forseta: Ég tala bæði sem læknir og ekki síður sem notandi og aðstandandi. Þið vitið öll hvernig talað er um Landspítalann. En að mínu mati liggur mesti vandinn ekki þar heldur í brotakenndri þjónustu við aldraða.
Brotakennd þjónusta við eldra fólk er einn helsti vandi heilbrigðiskerfisins í heild. Það sem er vanrækt í öldrunarþjónustu leiðir til ótímabærra innlagna á bráðamóttöku og sjúkrahús og síðan er fólk geymt á göngunum vegna skorts á hjúkrunarrýmum. Samkvæmt framkvæmdaáætlun á að byggja 394 hjúkrunarrými á næstu fimm árum þrátt fyrir að nú séu ríflega 400 manns á biðlista. Á höfuðborgarsvæðinu eru um 263 á biðlista eftir að komast inn á hjúkrunarheimili. Ef öll rýmin sem á að byggja verða komin í notkun á svæðinu árið 2028 má ætla að það vanti um 200 hjúkrunarrými ef við lítum til lýðfræðilegrar þróunar næstu árin. En látum það liggja á milli hluta. Stóra spurningin snýr að rekstri þessara rýma sem þó á að byggja.
Samkvæmt svari hæstv. heilbrigðisráðherra um hjúkrunarrými er rekstrarkostnaður 394 nýrra rýma 6,8 milljarðar kr. á ári. Í fjármálaáætlun til 2028 virðist ekki gert ráð fyrir rekstrarkostnaði hinna nýju rýma. Hvergi gat ég fundið 6,8 milljarða kr. í viðbót. Hvernig stendur á þessu?
Og talandi um rekstrarkostnað, virðulegi forseti, sem okkur verður mjög tíðrætt um hér í þessum sal og þá sérstaklega hvernig má reka ríkið betur, þá kemur fram í svari hæstv. heilbrigðisráðherra við fyrirspurn um hjúkrunarrými að verulegur munur er á kostnaði við mismunandi umönnunarúrræði. Kostnaður á einstakling á ári fyrir legu á sjúkrahúsi er hátt í 70 millj. kr. Sambærileg tala er nærri 17 millj. kr. fyrir hjúkrunarrými en 3 millj. kr. fyrir heimaþjónustu.
Rannsóknir sýna að stærsti hluti kostnaðar við heilbrigðisþjónustu er vegna þeirra 10–15% eldra fólks sem veikast er á hverjum tíma, hóps sem glímir við fjölveikindi, færnitap eða félagslega erfiðleika. Þetta er viðkvæmasti hópurinn sem þarf að setja í forgang, bæði til að koma í veg fyrir frekari vanlíðan og heilsubrest viðkomandi einstaklinga en líka til að tryggja óþarfakostnað í heilbrigðiskerfinu. Til þess verður að grípa fyrr inn í og veita öfluga og vel fjármagnaða heimaþjónustu samhliða því sem við vinnum á uppbyggingarskuldinni við þau sem þurfa nú þegar á hjúkrunarrými að halda.
Því vekur það furðu, virðulegi forseti, að fjármagn til uppbyggingar heimahjúkrunar hafi staðið óhreyft undanfarin 14 ár sem hlutfall af landsframleiðslu þrátt fyrir öldrun þjóðar og þrátt fyrir að þessi liður eigi að vera grunnstoð í umönnun eldra fólks og draga úr þörf á hjúkrunarrýmum. Hvers vegna hefur fjármagnið sem ekki hefur leitað út vegna uppbyggingar rýma ekki verið fundinn farvegur í heimahjúkrun? Og hvernig stendur á því, virðulegi forseti, að ekki er gert ráð fyrir aukningu í fjárframlögum til heimahjúkrunar samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar?
Ef við drögum þessa þætti saman og ég beini því áfram til hæstv. heilbrigðisráðherra: Hvernig hyggst hæstv. ráðherra bregðast við vöntun á hjúkrunarrýmum? Þá í fyrsta lagi í ljósi þess að hjúkrunarrými eru fyrir fólk sem heimaþjónustan getur að mjög takmörkuðu leyti sinnt, a.m.k. þeim sem eru á biðlista nú þegar. Í öðru lagi er viðbótarfjármagn í slíka þjónustu hvort sem er ekki til staðar í áætlunum stjórnvalda, og í þriðja lagi liggur fyrir að legurými á nýja Landspítalanum býður ekki upp á aukið svigrúm fyrir aldraða sem eru á biðlista.
Í þessu samhengi langar mig til hérna í lokin að varpa þeirri spurningu til hæstv. ráðherra hver staðan er varðandi vinnu við opnun hjúkrunarrýma fyrir einstaklinga sem glíma við fíknivanda eða fjölþættan vanda sem hæstv. ráðherra boðaði að opnuð yrðu árið 2021. Við vitum flest hér inni sem höfum talað við aðstandendur þessara einstaklinga og líka þá sem reka umrædd hjúkrunarheimili að það þarf að finna sérstök úrræði fyrir þennan hóp og það er orðið löngu tímabært.