Hjúkrunarrými og heimahjúkrun.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. málshefjanda fyrir umræðuna hér í dag og hæstv. heilbrigðisráðherra Willum Þór Þórssyni fyrir andsvörin. Þessi mikilvæga umræða dregur fram m.a. þau góðu verk sem hafin voru í tíð þáverandi heilbrigðisráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, og hefur verið haldið áfram, m.a. í verkefninu Gott að eldast, eins og hæstv. ráðherra benti hér á og hann fer fyrir ásamt Guðmundi Inga Guðbrandssyni félagsmálaráðherra.
Það var virkilega ánægjulegt þegar þessi aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk næstu fjögur árin var svo samþykkt hér á Alþingi í vor og fjármagn til að hrinda henni í framkvæmd fylgdi. Þetta er gríðarlega mikilvægt verkefni því að það er löngu orðið ljóst að stjórnvöld þurfa að hugsa málefni eldra fólks upp á nýtt og það er ánægjulegt að sjá að það ríkir um það skilningur hér í þingsal.
Aldurssamsetning þjóðarinnar breytist hratt. Eldra fólk lifir lengur en áður og er virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Þetta þekkjum við og sú staðreynd er auðvitað ekkert nema frábær. En þjónusta við aldrað fólk hefur ekki náð að halda í við þennan hraða, eins og við þekkjum, þrátt fyrir að margt hafi þegar verið gert gott. Svandís Svavarsdóttir lagði mikla áherslu á þetta í tíð sinni sem heilbrigðisráðherra enda í takt við stefnu okkar Vinstri grænna, þ.e. mikilvægi þess að samþætta þjónustu sveitarfélaga og heilbrigðiskerfis við eldra fólk svo það geti búið heima eins lengi og kostur er og draga þannig úr þörfinni fyrir fjölgun hjúkrunarrýma. Það er jú dýrasta úrræðið. Það er því virkilega ánægjulegt að sjá að núverandi ráðherra ætlar að halda áfram á þessari braut, en það breytir þó ekki þeirri staðreynd að við þurfum að byggja fleiri hjúkrunarrými enda gera áætlanir ráð fyrir því, eins og hæstv. ráðherra fór hér yfir. En það eru ýmsir tálmar sem hafa orðið til þess að það hefur ekki gengið jafn hratt og við hefðum viljað. Þetta er stórt viðfangsefni og það skiptir samfélagið gríðarlega miklu máli að það takist vel til með þetta verkefni sem varðar leiðina og ég hef fulla trú á því að við náum í því árangri okkur öllum til heilla.