Hjúkrunarrými og heimahjúkrun.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka málshefjanda þessa þörfu umræðu. Sá hv. þingmaður sem hér var að ljúka máli sínu speglar auðvitað það sem jákvætt má teljast því að auðvitað er það sitt hvað, við skulum þakka fyrir það en ekki vanmeta. Samt held ég að við séum flest sammála um að það er grafalvarlegur vandi fram undan til lengri tíma litið og ég held að við þekkjum öll dæmin um það. Ég er búinn að vera með skjólstæðing í sirka fimm mánuði sem er alltaf alveg að fara að fá úrræði, sem er einangraður einhvers staðar uppi á Vífilsstöðum, félagslega einangraður og vansæll. Það er ekkert að frétta, það þarf einhverja deyja til þess að hann komist inn. Svona er þetta og við viljum ekki hafa þetta svona.
Ég er nokkurn veginn viss um að hæstv. heilbrigðisráðherra er sammála okkur sem viljum átak í þessum efnum. Við í Flokki fólksins höfum nú margoft talað um að neysluvísitala þurfi ekki hér frekar en annars staðar að innibera húsnæðis- eða fasteignaþátt. Ég held að vandamál okkar, bæði í því sem við ræddum áðan með hæstv. mennta- og barnamálaráðherra og það sem er til öll umræðu hérna, snúist að stórum hluta um þörf á húsnæði. Og óttinn við frekari þenslu af því að byggja nýtt húsnæði eða taka nýtt húsnæði til notkunar er stór faktor í þessu.
Ég legg það til að það verði stofnaður sérstakur hópur um þetta sem er einhvers konar efnahags-, fjármála- og húsnæðismálaráðgjafahópur um hvernig við getum tekið þennan þátt út úr breytunni sem allt setur á annan endann. Það að við getum ekki fjármagnað þarft skólahúsnæði hjá sívaxandi þjóð og það að viðblasandi öldrun Íslendinga (Forseti hringir.) er ekki mætt með þeim hætti sem margoft er búið að benda á og biðja um er sérstakt úrlausnarverkefni (Forseti hringir.) sem á ekki að þurfa síðan að hækka vexti og verðbólgu hérna. Finnum leiðirnar í þessu. Vilji er allt sem þarf.