Hjúkrunarrými og heimahjúkrun.
Frú forseti. Samningurinn við Reykjavíkurborg 2021 um að veita sérhæfða heimahjúkrun, sem var enn frekar styrktur árið 2022, og þar sem sambærilegu fjármagni var líka bætt við hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, er mikilvægur. Í þetta fara nú um 500 millj. kr. árlega og þá má heldur ekki gleyma því að um 300 milljónir voru gerðar varanlegar í fjárlögum á árinu 2023, þ.e. á yfirstandandi ári, í almenna heimahjúkrun. Biðin eftir hjúkrunarrými, þ.e. ef við getum talað um það sem varanlegu búsetuna, þ.e. þegar fólk fer þangað í lok líftíma síns, hefur styst frá 2019 og miðgildi biðtíma er þá 109 dagar. Þörfin fyrir hjúkrunarheimili fyrir fjölbreytta hópa mun áfram vera til staðar en nú höfum við fjármagnað aðgerðaáætlanir sem miða að því að draga úr henni.
Aukið vægi forvarna í forgangsröðun heilbrigðisþjónustunnar er gríðarlega mikilvægt fyrir kerfið okkar. Það er ekki bara fjárhagslega skynsamlegasta leiðin heldur sparar sú leið líka fólki þjáningar og eykur lífsgæði, sem seint verður verðlagt í krónum. Á síðasta kjörtímabili var gerð gangskör í uppbyggingu heilsueflandi móttöku á heilsugæslum og þær viðbætur eru einmitt til þess fallnar að bæta þjónustu, m.a. við aldraða.
Mönnunaráskorunin er um allan heim og vert að spyrja, líkt og málshefjandi gerði, um áhrif breyttrar aldurssamsetningar á forsendur til mönnunar þjónustunnar. Ég verð nú samt að segja í þessu samhengi að það var ánægjulegt að lesa grein formanns Sjúkraliðafélags Íslands í gær, Söndru B. Franks, sem rifjaði upp að í vor útskrifaðist hópur sjúkraliða frá Háskólanum á Akureyri með 60 eininga diplómagráðu í öldrunar- og heimahjúkrun, því að eins og Sandra segir svo réttilega í grein sinni Bætt öldrunarþjónusta og heimahjúkrun er lykillinn að því að mæta örum líffræðilegum breytingum. Heilbrigðisstofnanir um allt land hafa kallað eftir slíkri færni og þekkingu á meðal sjúkraliða. Stjórnvöld hlustuðu og studdu vel við uppbyggingu námsins enda er það mikilvæg viðbót við heilbrigðisþjónustuna. Heilbrigðisþjónustan og -málin eru okkar stærsti og mikilvægasti málaflokkur og ég held við séum öll sammála um að hlúa vel að eldra fólkinu okkar sem lagði grunninn að því góða samfélagi sem við lifum í. Um leið þurfum við stöðugt að laga okkur að samfélags- og tæknibreytingum og að því vinnum við hér eftir sem hingað til.