154. löggjafarþing — 8. fundur,  21. sept. 2023.

vaktstöð siglinga.

180. mál
[12:32]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég fékk nú bara gott svar frá hv. þm. Teiti Birni Einarssyni hér og viðbrögð við þessum þætti sem er mikilvægur. Ég taldi rétt að koma hér í andsvar til að, já, kannski í og með til að taka undir en líka að árétta það að hér er verið að bregðast við þessum þætti þegar við erum að tala um varðandi vaktstöð siglinga sem er siglingaöryggið, sem þetta kjarnast auðvitað að stórum hluta um. Ég bara ítreka hér og árétta með hv. þingmanni mikilvægi þess að hv. umhverfis- og samgöngunefnd líti til annarra sjónarmiða sem sannarlega hafa komið fram, bæði þegar málið var lagt fram hér í fyrra skipti og í tengslum við aðra vinnu og náttúruverndarsjónarmið á vettvangi hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Ég vil í seinna andsvari fylgja því eftir og árétta og ég er ekki í vafa um að hv. umhverfis- og samgöngunefnd muni taka þessa umræðu upp í vinnu sinni.