154. löggjafarþing — 8. fundur,  21. sept. 2023.

vaktstöð siglinga.

180. mál
[12:34]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Hér er frumvarp til laga um breytingar á lögum um vaktstöð siglinga sem er endurflutt. Þetta frumvarp var á dagskrá hér í fyrra og kom til hv. umhverfis- og samgöngunefndar þar sem ég sat og var framsögumaður þessa máls. Því miður náðum við ekki að klára það þótt við afgreiddum nú nefndarálit frá okkur þar sem við fögnuðum þessari tillögu og eins lögðum við áherslu og gerðum breytingar.

Þetta frumvarp um vaktstöð siglinga fjallar náttúrlega aðallega, eins og hæstv. heilbrigðisráðherra tók hér fram, um öryggi siglinga. En það kemur náttúrlega að öðrum þætti líka, t.d. eins og hér hefur verið til umræðu hjá hv. þm. Teiti Birni Einarssyni um landtöku skipa, þá skemmtiferðaskipa, sem var svolítið mikil umræða um í nefndinni í fyrra og við komum inn þeirri breytingu sem hefur skilað sér inn í endurflutt frumvarp að þeir tilkynni landtöku. Mér finnst það skipta máli og ég ætlaði bara að koma hingað upp til að undirstrika það. Ég fagna því að ráðuneytið hafi komið þessu inn í nýtt frumvarp vegna þess að það er bara verið að kalla mikið eftir þessu, fyrir utan það að í fyrra var með frumvarpinu gert ráð fyrir að þeir myndu tilkynna sig á milli hafna eins og þegar þeir væru að fara inn í firði, sem er náttúrlega mjög nauðsynlegt öryggisins vegna. Það var í fréttum bara í síðustu viku að skip hefði strandað inni í firði á Grænlandi og þó að þetta sé allt mjög fært fólk sem stýrir þessum skipum og allt í kringum það þá eru náttúrlega áskoranir hér inni í öllum fjörðum sem þarf að vita af og kunna.

Hvað varðar landtöku hvar sem er þá eru, eins og kom fram í máli ráðherra, friðlýsingarskilmálar sem þetta kemur inn á á friðlýstum svæðum, þó ekki öllum. Hér hefur verið talað um Dynjanda í Arnarfirði. Þótt það sé nýfriðlýst svæði þá er þetta ekki inni í friðlýsingarskilmálunum. Ég veit að það hefur verið horft til þess að þetta er orðið mikill ágangur því þetta eru stór skip með kannski þúsundir farþega. Svo stór skip fara kannski ekki þar inn en þetta er samt orðinn mikill ágangur þegar það eru kannski 1.000 farþegar, þótt þau fari á litlum bátum, og það þarf að stýra þessu. Ég held að frú forseti geti alveg verið sammála mér í því að það vantar stefnu fyrir móttöku skipa hér á landi. Við erum að sjá að þetta er að margfaldast á örfáum árum og sú umgjörð sem við höfum bundið utan um þetta gerði kannski bara ráð fyrir einhverjum fáum og stuttu tímabili. En þetta er orðið virkilega þannig að við þurfum að skoða þetta út frá mörgum þáttum, ekki kannski endilega til að takmarka heldur til að búa betur um þetta.

Landhelgisgæslan var sammála okkur í umsögn sinni í fyrra og tók undir það að slíkar siglingar á viðkvæmum svæðum væru ekki tilkynningarskyldar og vaktstöðin vissi fyrir vikið ekki ávallt um áætlanir þessara skipa og þess vegna væri nauðsynlegt að þau myndu þá tilkynna sig, og þá til þess bærra aðila. Ef við tökum dæmi af Dynjanda þá myndu landverðir vita af því en það er engin skylda að tilkynna þeim um það núna, og gætu þá brugðist við. Það eru þá kannski einhverjir þjónustuaðilar í landi og þetta skiptir miklu máli.

Hv. þm. Teitur Björn Einarsson kom inn á réttindi landeigenda sem þyrfti kannski að taka inn í þetta og skoða og sérstaklega í þessari vinnu sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra er að vinna að, sem mér finnst bara mjög tímabært. En það snýst ekki bara um réttindi landeigenda heldur líka skyldur því að ef landeigandi ætlar að taka á móti, og ég tala nú ekki um taka gjald af farþegum sem eru að koma í land, hverjar eru þá skyldur landeiganda til að taka á móti svo stórum hóp? Þetta er bæði öryggisatriði og varðar landeigendur þá í kringum þetta land, og er það bara mögulegt og erum við ekki að stofna kannski einhverjum í hættu með því? Þetta þarf allt að skoða út frá hverjum stað fyrir sig. Við vitum að það eru að koma farþegar í land og þar fyrir er kannski þjónusta sem ekki er hægt að koma að landleiðina, við nefnum bara ferðaþjónustufyrirtæki á Ströndum. Þau eru að taka á móti skemmtiferðaskipum, þá í takmörkuðu magni eins og þau geta tekið við og hefur gefist vel. Þetta virkar sums staðar en annars staðar ekki.

Síðan er líka, þó að það sé ekki friðlýst svæði, t.d. friðlýst æðarvarp og það hefur komið fyrir að farþegaskip hafa verið að setja í land án þess að kanna nokkuð hvað er fyrir og þá geta verið einhverjar aðstæður sem má alls ekki koma inn á. En ég veit líka að skemmtiferðaskipin eða fyrirtækin sem reka þau eru með mismunandi stefnu fyrir sín skip og það eru ekkert öll skip sem leyfa landtöku, sérstaklega á viðkvæmum svæðum, og hafa það nokkuð ofarlega í huga. Ég nefni vinnu á Snæfellsnesi sem sveitarfélögin þar hafa farið í, að móta stefnu fyrir þetta svæði fyrir móttöku skemmtiferðaskipa og þá ef eitthvað er um landtöku þar, þannig að allt spilar þetta saman. Ég held að það sé kominn tími til að við stígum svolítið fast til jarðar og mótum skynsamlegar og góðar reglur í kringum þetta öllum til heilla. Boð og bönn eru kannski ekki alltaf best en það þarf alla vega að stýra þessu þannig að öryggi farþega sé haft að leiðarljósi og ekki síður umhverfi og náttúra sem er verið að hleypa fólki að.

Ég hlakka til að takast á við þetta í umhverfis- og samgöngunefnd og vona að við getum afgreitt þetta fljótt og vel, enda vorum við komin langt á veg síðasta vetur.