154. löggjafarþing — 9. fundur,  26. sept. 2023.

Efling Samkeppniseftirlitsins.

[13:36]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu höfum við það í huga að styðja við allt umhverfi samkeppnismála og neytendamála á Íslandi. Allt annað er algerlega útilokað. Fjárveitingar til Samkeppniseftirlitsins hafa verið að aukast. Við getum auðvitað alltaf, eins og hv. þingmaður þekkir, gert betur hvað það varðar en ég vil bara fullvissa hv. þingmann um að það stendur ekki til að leggja niður Samkeppniseftirlitið eða veikja það. Þvert á móti.