Valkostir við íslensku krónuna.
Virðulegur forseti. Sami seðlabankastjóri ráðlagði heimilum landsins fyrir nokkrum misserum, örfáum mánuðum síðan: Um að gera, takið óverðtryggð lán. Formaður Sjálfstæðisflokksins fór í kosningabaráttu með að Ísland væri lágvaxtaland. Hallelúja. Hvað gerist síðan? Í dag er seðlabankastjóri að mæla eindregið með því fyrir heimilin í landinu, með öllum þeim byrðum sem það þýðir, að fara inn í verðtryggð lán.
Af hverju getum við ekki reynt að fara að tala um kjarna málsins? Af hverju erum við alltaf að tala um brunavarnir þegar eldurinn eru fyrir löngu kviknaður? Af hverju getum við ekki byrjað á grunninum og eflt okkar brunavarnir, ekki bara til skemmri tíma heldur til lengri tíma? Um þetta snýst málið. Þetta er það sem m.a. forystufólk innan verkalýðshreyfingarinnar — af því að það er að tala við fólkið á gólfinu, fólkið sem er að greiða þessi lán sem hafa farið úr 200.000 í 400.000, úr 300.000 í 500.000, fólkið sem getur ekki lengur borið þessar krónubyrðar sem eru alltaf settar reglulega á þeirra herðar.
Það er ekki jafnt gefið í íslensku samfélagi meðan ástandið er svona í efnahagsmálum, (Forseti hringir.) sama hvaða plástra við reynum að nota. Við erum öll af vilja gerð (Forseti hringir.) og við erum alveg til í skammtímaaðgerðir en Viðreisn segir: Við verðum að þora að fara að horfast í augu við framtíðina og raunverulega takast á við brennuvarginn.