154. löggjafarþing — 9. fundur,  26. sept. 2023.

Valkostir við íslensku krónuna.

[13:46]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst að verðbólga er of há á Íslandi og vextir eru of háir og þess vegna er það algjört forgangsmál hjá ríkisstjórninni að verðbólgan lækki. Hún hefur verið að lækka en hún þarf að lækka meir. Það er alveg ljóst í mínum huga að sú vaxtabyrði sem heimilin bera og fyrirtækin — þessi kostnaður er of mikill. En þetta er ekki herkostnaður vegna krónunnar. Ástæðan fyrir því að vextir eru hærri á Íslandi er m.a. vegna þess að hagvöxtur er meiri á Íslandi. Það er of mikil spenna á vinnumarkaðnum. Ég verð að segja alveg eins og er að atvinnustig á Íslandi er með því allra besta sem gerist í Evrópu og hagvöxtur er mjög mikill. Það breytir því hins vegar ekki að við verðum að ná þessari verðbólgu niður og allir þurfa að taka þátt í þeirri vegferð.