154. löggjafarþing — 9. fundur,  26. sept. 2023.

niðurstöður áfrýjunarnefndar samkeppnismála um athugun Samkeppniseftirlitsins.

[13:47]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála komst að mjög afdráttarlausri niðurstöðu um það að rannsókn sem hæstv. matvælaráðherra og Samkeppniseftirlitið réðust í stenst enga skoðun, væri ekki lögmæt, það hvernig til hennar var stofnað og hvernig að henni var staðið. Nú heyrir þessi stofnun ekki undir matvælaráðherra og því liggur beinast við að spyrja hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra: Hvað finnst hæstv. ráðherra um niðurstöðu áfrýjunarnefndarinnar? Hvaða viðbrögð kallar þetta á að mati hæstv. ráðherra?

Einnig vil ég spyrja sérstaklega út í það atriði sem kom fram í umfjöllun um þessa ólögmætu rannsókn, það að stofnunin hafi leitast eftir því að fá upplýsingar um hvernig menn greiddu atkvæði á aðalfundum, jafnvel í leynilegri atkvæðagreiðslu. Það þótti nú til siðs hjá fyrirtækjum að fá utanaðkomandi lögmenn til að halda utan um atkvæðagreiðslur á aðalfundum og eyða síðan kjörgögnunum þannig að stjórnendur fyrirtækjanna gætu ekki fundið út hvernig hluthafar þeirra hefðu greitt atkvæði. En þarna er ríkisstofnun að fara fram á upplýsingar um hvernig menn greiddu atkvæði á fundum fyrirtækjanna. Er þetta eðlilegt að mati hæstv. ráðherra? Og loks spyr ég um afstöðu hæstv. ráðherra til málflutnings bæði Samkeppniseftirlitsins og hæstv. matvælaráðherra þess efnis að þessir aðilar vilja einfaldlega að rannsóknin haldi áfram eins og ekkert hafi í skorist en ætlast reyndar til að Alþingi afgreiði meira fjármagn í vinnuna.