niðurstöður áfrýjunarnefndar samkeppnismála um athugun Samkeppniseftirlitsins.
Herra forseti. Það var ekki annað að heyra á hæstv. matvælaráðherra en að ráðherrann vildi einfaldlega að þessi rannsókn, sem ráðherrann hafði frumkvæði að, héldi áfram eins og ekkert hefði í skorist og ætlaðist til þess að þingið borgaði. Sá málflutningur er í samræmi við afstöðu Samkeppniseftirlitsins. Hver er afstaða ráðherrans sem fer með málefni Samkeppniseftirlitsins til þeirra ákvarðana eða þeirrar stefnu? Í öðru lagi hvet ég hæstv. ráðherra til að svara hinum spurningunum tveimur sem ég spurði hér áðan. Finnst ráðherra það ásættanlegt að ríkisstofnun æski þess að fá upplýsingar um hvernig hluthafar í fyrirtækjum greiða atkvæði? Er hæstv. ráðherra sáttur við að eftirlitið gangi svo langt? Loks hvet ég hæstv. ráðherra til að halda þinginu upplýstu um gang mála í ljósi þess sem á undan er gengið.