154. löggjafarþing — 9. fundur,  26. sept. 2023.

ellilífeyrir og kjaragliðnun.

[13:54]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Herra forseti. Nú skulum við tala um ellilífeyri. Í 62. gr. almannatryggingalaga stendur skýrum stöfum að greiðslur almannatrygginga skuli taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. En hvað hefur gerst á undanförnum árum? Jú, það hefur verið tekin pólitísk ákvörðun við ríkisstjórnarborðið og svo hér í þessum sal á vakt stjórnarmeirihlutans um að láta bilið milli launa og lífeyris breikka ár frá ári. Bæði ellilífeyrir og örorkulífeyrir hafa dregist aftur úr launaþróun og hvað varðar ellilífeyrinn þá hefur ekki einu sinni lágmarkskrafa laganna um að greiðslur hækki aldrei minna en verðlag verið virt. Ellilífeyrir hækkaði minna en verðlag árið 2021 og aftur minna en verðlag árið 2022. Þá hlýt ég að spyrja hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, ráðherrann sem á að passa upp á almannatryggingakerfið okkar: Er ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hafin yfir lög og reglur í landinu? Er það stefna ríkisstjórnarinnar að ellilífeyrir hækki minna en laun og jafnvel minna en verðlag? Og ef það er ekki stefnan, hvers vegna er það þá látið viðgangast ár eftir ár?