áhrif hækkunar stýrivaxta á heimilin í landinu.
Virðulegi forseti. Það þarf að fara að ræða hlutina eins og þeir eru. Það þýðir ekkert að ræða um kaupmáttaraukningu heimilanna þegar vaxtabyrði hefur aukist um 2–300.000 kr. á hverjum einasta mánuði hjá venjulegum fjölskyldum. Staðreyndin er sú að 10% verðbólga er bara nákvæmlega 10% verðbólga. Það þýðir að ef útgjöld heimilanna voru 100.000 kr. eru þau nú 110.000 kr., ef þau voru 500.000 kr. fara þau upp í 550.000 kr. Þetta er nokkurn veginn þannig. Hvernig í ósköpunum er hægt að réttlæta það að verið sé að bjarga fólki undan því með því að margfalda álögur á það í hverjum mánuði með vaxtahækkunum, með þeim hætti sem gert hefur verið? Það er ekki sama hvernig það er gert að berjast við verðbólguna og það er engan veginn réttlætanlegt að öll sú barátta og allur sá skaði lendi beint á heimilum landsins. Þar fyrir utan er þetta sem ég nefndi áðan, að það er ekki heil brú í því að hækka vexti og hvetja alla til þess að fara yfir í verðtryggð lán vegna þess að þá virkar það ekki. (Forseti hringir.) Eins og staðan er eru 25% heimila landsins að bera þetta uppi. Er einhver hissa á því að 14 vaxtahækkanir hafi ekki virkað?