154. löggjafarþing — 9. fundur,  26. sept. 2023.

endurskoðun viðurlaga vegna vændiskaupa.

[14:15]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég veit ekki til þess að það hafi verið sérstaklega skoðað hér á landi eða í nágrannalöndum okkar hvort líta skuli á vændiskaup sem tvö brot eins og hv. fyrirspyrjandi spyr hér um. En eins og ég kom að áðan þá legg ég áherslu á að við lítum til nágrannalanda okkar og hvernig þau eru að bregðast við í málum sem þessum vegna breytinga á löggjöfinni. Þá er rétt að benda á að það er ekki óalgengt að tveimur eða fleiri refsiákvæðum sé beitt saman og sakfellt fyrir brot gegn þeim báðum og eru dæmi um slíkt innan brotaflokks sem hér er til umræðu og má nefna þar dóm Hæstaréttar frá 2012 þar sem ákærði var sakfelldur fyrir nauðgun, tilraun til vændiskaupa og rán og við eigum dæmi um fleiri dóma í þessu efni. Það er alveg ljóst, eins og dæmin sýna, að ákærendur, dómarar og lögmenn sem eru sérfræðingar í refsirétti eru vel meðvitaðir um að til álita kann að koma að beita fleiri refsiákvæðum.