154. löggjafarþing — 9. fundur,  26. sept. 2023.

stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024--2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.

182. mál
[15:36]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Kannski byrja ég á að upplýsa að ég er enn þá í umhverfis- og samgöngunefnd, þó að ég sé ekki formaður lengur, og er einnig í fjárlaganefnd, svo að það sé á hreinu.

Umræðan hér snýst dálítið um orkuöflun og hvernig hún fer fram. Það er hægt að fara í orkuöflun á mjög fjölbreyttan hátt. Það verður kannski með því að stjórnvöld setji sér skýra stefnu um að fara í orkuskipti. Af því að við höfum verið að tala hér um loftslagsmál þá eru orkuskiptin besta leiðin, myndi ég halda. Orkuskipti eru ekkert annað en það að skipta um orkugjafa. Við höfum þá aðgengi að þessum orkugjafa sem er hægt að fara í í gegnum rafmagn á fjölbreyttan hátt. Það þurfum við að gera og það er hægt að gera með vatnsaflsvirkjunum, jarðvarmavirkjunum, vindorkuvirkjunum, smávirkjunum, sjávarfallavirkjunum, sólarsellum, vindtúrbínum á heimilum og lengi mætti telja, líka með öflugra flutningskerfi þannig að við séum að spara orkuna, draga úr orkutapi og stilla orkunotkunina og aflþörfina og allt saman. Við þurfum að hafa þetta allt saman undir í þessu og forgangsraða orkunotkuninni í þau verkefni sem koma loftslagsmálum og náttúruvernd og efnahag okkar best og að sjálfsögðu tryggja orkuöryggi íbúanna sem þurfa nú bara brot af þeirri orku sem við framleiðum. Þannig að ég held að við getum öll verið sammála um að taka frá orku í það. Ef við setjum þessa skýru stefnu um að við ætlum að gera þetta svona, hvað gerist þá? Þá koma allir með okkur; nýsköpunarsamfélagið, háskólarnir og atvinnulífið. Atvinnulífið er að vísu komið langt á undan okkur. Það eina sem stoppar nýsköpun og framþróun í orkuskiptum og orkuöflun á Íslandi er einmitt orkan. Stjórnvöld gefa ekki leyfi til frekari orkuöflunar og þá stoppar þessi mikli hraði sem atvinnulífið er á.