154. löggjafarþing — 9. fundur,  26. sept. 2023.

stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024--2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.

182. mál
[15:41]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir að gefa mér tækifæri til að ræða þetta mikilvæga mál, aðkomu sveitarfélaga að orkuöflun. Ég held að það sé nú kannski stóra vandamálið að það er of mikið af löggjöf. Lögin eru bara orðin allt of mörg og flókin og flækjast fyrir í þessu. Við höfum verið að nýta okkar náttúru og hálendið í marga áratugi, ef ekki hundruð ára, í orkuöflun og samt eigum við þetta glæsilega ósnortna hálendi og lengi mætti telja. Það er af því að fólkið sem býr í samfélögunum, í sveitarfélögunum og við hálendið, kann með þetta að fara. Því held ég að við eigum að treysta sveitarfélögunum fyrir þessu í gegnum skipulagsvaldið sitt. Ég skynja ekki annað en að nánast undantekningarlaust séu flest sveitarfélög á landinu hlynnt orkuöflun í sínum bakgarði og vilji að sjálfsögðu njóta ávinnings af sínum virkjunum, þá í gegnum fasteignagjöldin eða eftir einhverjum öðrum leiðum. Ég tek heils hugar undir með þeim í sveitarfélögunum; að sjálfsögðu á meira af tekjunum, þeirri verðmætasköpun sem verður við orkuöflunina, að verða eftir í því samfélagi sem hefur orkumannvirkin innan sinna marka og áhrifasvæða og þarf að undirbúa þetta og allt slíkt. Að sjálfsögðu eigum við að gera það. Við eigum líka að treysta þeim í auknum mæli til að ákvarða orkuöflunina. Ég held að þeim sé vel treystandi til þess. Þau skilja það svo vel að orkuöflunin skapar aukin tækifæri. Við lærðum í umhverfis- og samgöngunefnd þegar við vorum að ræða um rammaáætlun 3 og grænbókina og fleira að það voru sveitarfélögin sem kölluðu mest eftir aukinni orkuöflun af því að það myndi treysta byggðir landsins mest.