stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024--2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Forseti. Það er ýmislegt gott að finna hérna en það er tiltölulega mikið auðveldara að setja niður fögur orð á blað en að framfylgja þeim og fjármagna þau eins og við höfum séð að undanförnu. Margt af þessu hef ég séð áður í stefnu stjórnvalda í fjármálaáætlun en ekki fjármagnið sem því fylgir.
Ég talaði við hæstv. ráðherra áðan um einmitt eitt af þeim atriðum sem eru hérna, sem er þjónusta við fatlað fólk. Það hefur komið á daginn að hún er í ágætlega miklum halla, ágætlega miklum mínus, og þar hefur verið talað um að það hafi verið vanmat á kostnaði, gríðarlega mikið vanmat í kostnaðaráætluninni. Þegar frumvarpið var samþykkt hérna á þingi var gert ráð fyrir milljarði eða svoleiðis í aukakostnað eða svo, en umsögn Reykjavíkurborgar við það frumvarp útskýrði hvernig það stóðst alls ekki. Það varðaði sérstaklega rétt fólks til húsnæðis sem munaði þar, fara úr fjölbýli, þ.e. í sambúð með öðrum, í einbýli, réttinn til að vera í einbýli. Þar mat Reykjavíkurborg að kostnaðurinn gæti, ef allir færu í það úrræði, orðið allt að 11 milljarðar bara fyrir Reykjavík og ekki önnur sveitarfélög. Kostnaður við önnur atriði sem voru í umsögn Reykjavíkurborgar var eilítið minni en samt yfir þeirri áætlun sem var í því frumvarpi. Þannig að þegar ráðherra kemur hérna og segir að við verðum að skoða hverjum þetta sé að kenna, nokkurn veginn, þá er ekki hægt að segja að það hafi ekki verið varað við þessu. Þetta er mjög vel rekjanlegt og mjög vel rökstutt í umsögn Reykjavíkurborgar með tilliti til þáverandi rekstrarforms, þeirra eininga og þeirrar þjónustu sem þá var í gangi. Það er ekki eins og það sé verið að veita einhverja aukaþjónustu, það er verið að uppreikna miðað við þá þjónustu sem þegar var veitt miðað við réttindin sem lögin veita mjög skýrum stöfum. Það er áhugavert að ekki hafi verið hlustað á þá umsögn. En þegar kostnaðurinn allt í einu fer að bíta önnur sveitarfélög utan Reykjavíkur þá fer allt í háaloft.
Það hefur einhvern veginn verið vaninn að hlusta ekki á Reykjavíkurborg í tíð þessarar ríkisstjórnar eða ríkisstjórna undir stjórn Sjálfstæðisflokksins á meðan Sjálfstæðisflokkurinn er ekki með meiri hluta í borginni. Það má taka mjög mikinn vara á allri pólitík sem kemur frá þeim flokki með tilliti til borgarinnar. Maður á að hlusta nokkurn veginn á allt sem þau segja varðandi borgina með þann vara á að það sé meira pólitískt drifið heldur en nokkuð annað, horfa á allt með stóru stækkunargleri. Alltaf þegar verið er að tala um skuldahlutfall og slæma stöðu borgarinnar þá gleyma þau því alltaf að það eru önnur sveitarfélög, sem þau sjálf stjórna, sem eru í miklu verri málum. Ákveðin hræsni þar í gangi.
Staðan er slæm í sveitarfélögunum í heild sinni, við vitum það af þessum greiningum sem við höfum séð. Við höfum enga ástæðu til að trúa ekki þeim greiningum því að við höfum ekki heyrt nein rök á móti nema það sem kannski hæstv. fjármálaráðherra segir og er í rauninni bara að kenna sveitarfélögunum um að þau séu allt í einu að veita miklu meiri þjónustu en gert var ráð fyrir. Þetta er það sem var sem sagt. En aftur, þau rök sem við fáum frá sveitarfélögum, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Sambandi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sýna aftur á móti að það er ekki raunin. Uppreikningur á núverandi þjónustu, lögin eins og þau eru veita mjög augljóslega fólki réttindi til að búa sjálfstætt og þess háttar. Þannig að það er ekkert flókið við þessa útreikninga, alla vega ekki hvað þetta varðar.
Við þurfum nauðsynlega, og það er eitthvað sem ég tek hjartanlega undir í þessari áætlun, að skoða tekjustofna sveitarfélaga og það hefur verið kallað eftir því ítrekað á undanförnum árum. Það eru einhverjar nefndir í gangi og verið að spjalla eitthvað fram og til baka en einhvern veginn gerist ekkert. Það fæst engin niðurstaða, að hluta til held ég af því að ríkissjóður er í dálítið miklum vanda, sérstaklega tekjuvanda, og þá er ekkert eftir handa sveitarfélögunum. Þá er ákveðið að þau geti bara keyrt sig í mínus til að ríkið líti aðeins betur út.
Samband ríkis og sveitarfélaga er dálítið svona ölmususamband, dálítið fátæktargildrusamband. Sveitarfélögin eru upp á Alþingi komin, ríkisstjórnina í rauninni, með tekjustofna sína og þau verkefni sem Alþingi setur á sveitarfélögin, stundum án samráðs meira að segja. Það er búið að setja einhver lög, sem vissulega var samráð og samtal um og allir voru sammála um, t.d. yfirfærslu á grunnskólanum og þess háttar og fólk var sammála þeim breytingum á útsvarinu og þess háttar sem fylgdu þar. En svo var bara aukið í rauninni í þá þjónustu sem þurfti að veita í grunnskólanum. Það eru svona vandamál sem skemma oft kerfin eftir að búið er að ná einhverju samkomulagi. Og ég vek athygli á því að þetta er ekki nýtt vandamál. Þetta plagg, sem er gott og blessað og ég held að renni nokkuð ljúflega í gegnum þingið — það er í rauninni ekkert haldbært í þessu plaggi. Þetta eru loforð með engum markmiðum nema þeim sem eru sett í fjármálaáætluninni sjálfri. Þar eru prósentutölur um ákveðin markmið o.s.frv., sem eru almennt séð ekkert voðalega vel fjármögnuð, en alla vega er það plaggið sem skiptir máli þegar allt kemur til alls, þegar við fáum að sjá tölurnar sem eru á bak við þessar aðgerðir sem eru hérna.
Ég held að það séu allir sammála um að það þurfi að fara í þessar aðgerðir sem eru hérna, það þarf að ná þessum markmiðum þannig að ég efast ekki um að þetta fljúgi í gegn. En þegar kemur síðan að útfærslu, eins og með tekjustofnana, þegar þarf að ákveða t.d. hvort sveitarfélög þurfi að hafa fullnýtt útsvarsprósentu sína áður en þau fá úr jöfnunarsjóði, þá veit enginn hvernig það fer. En það er ekki hluti af því að samþykkja þessa þingsályktunartillögu heldur er það einhver seinni tíma hausverkur þegar mun verða skorið úr um hvort markmið þessarar þingsályktunartillögu muni nást. Þar liggur vandinn og hefur alltaf gert, hann liggur í þessum yndislegu smáatriðum.
Þessi þingsályktunartillaga er einmitt mjög laus við smáatriði þegar allt kemur til alls, hún er mjög almenn. Með leyfi forseta: „Skilgreint verði hvaða þjónustu sveitarfélag þurfi að veita til að uppfylla lágmarksréttindi íbúa.“ Mjög sjálfsagt, að sjálfsögðu þurfum við að gera það. Munum við ná samstöðu um það með sveitarfélögunum og um fjármögnunina sem því fylgir, samkomulagi um hvað þetta verður? Mér finnst það tiltölulega ólíklegt þegar allt kemur til alls. Þá stendur hér, með leyfi forseta, „að tryggja að tekjur standi undir lögbundinni þjónustu, áföllum og framtíðaráskorunum sveitarfélaga“. Það gerir það ekki núna og hefur ekkert gert. Af hverju ættum við að búast við því, þó að við viljum ná þessu markmiði, að við munum ná því í einhverri framtíð? Þetta plagg mun ekki hjálpa okkur til þess að ná því markmiði, alls ekki. Það er gott að fá það skrifað niður að þetta eigi að vera markmiðið. Ég fagna því tvímælalaust. En ég hlakka til að sjá skrefin sem verða tekin til þess í raun og veru að ná markmiðinu.
Hér er talað um stefnumótandi áætlun til 2038. Við hljótum að geta náð þessum markmiðum fyrr, í alvörunni. Að ná sjálfbærum sveitarfélögum — eigum við að miða við 2038? Örugglega ekki, en jú, þetta er aðgerðaáætlun sem nær til 2028 sem er út núverandi fjármálaáætlunartímabil. Við verðum ekki búin að ná öllum markmiðunum þá, ekki miðað við fjármálaáætlun alla vega nema núna í vor komi ný fjármálaáætlun með einhverri stefnubreytingu og fjármögnun á þeirri stefnu. Ég sé það einhvern veginn ekki gerast, ekki miðað við að fjármálaráðherra hefur talað um að það vanti peninga alls staðar, ekki miðað við það hvernig útgjaldahlutfall og tekjuhlutfall er miðað við verga landsframleiðslu og hvernig skattstefnu ríkisstjórnin hefur verið að reka. Ekki séns.
Ég hlakka til að sjá ekki bara fallegu orðin hérna verða að stefnu heldur hlakka ég til að sjá hvernig þetta verður fjármagnað.