154. löggjafarþing — 9. fundur,  26. sept. 2023.

endurskoðendur o.fl.

184. mál
[17:01]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um endurskoðendur og endurskoðun og lögum um ársreikninga, á þskj. 186, 184. mál. Frumvarp þetta var áður lagt fram á 153. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga á því löggjafarþingi. Frumvarpið er nú endurflutt efnislega óbreytt að frátöldum minni háttar breytingartillögum sem samþykktar voru af meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar við þinglega meðferð málsins.

Í frumvarpinu er annars vegar að finna breytingar á lögum um endurskoðendur og endurskoðun, nr. 94/2019, og hins vegar breytingar á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006.

Breytingar á lögum um endurskoðendur og endurskoðun eru tvíþættar. Í fyrsta lagi er að finna ákvæði er lúta að endurskoðendaráði. Endurskoðendaráð skal bera ábyrgð á eftirfylgni með frammistöðu endurskoðunarnefnda í samræmi við reglugerð ESB nr. 537/2014, auk þess sem lagt er til að kveðið verði á um það í lögum að endurskoðendaráð sé sjálfstæð stjórnsýslunefnd og að endurskoðendaráð hafi heimild til að ráða sér starfsmann til að geta sinnt skyldum sínum.

Í öðru lagi er að finna ákvæði er lúta að því að skýra betur út stöðu siðareglna endurskoðanda og hvaða siðareglum endurskoðendum ber að fylgja. Sterk hefð er fyrir hugtakinu „góð endurskoðunarvenja“ á Norðurlöndum og með lögum um endurskoðendur og endurskoðun, nr. 94/2019, er rennt styrkari stoðum undir það hugtak hér á landi. Lagt er til í frumvarpinu að siðareglurnar verði settar undir hugtakið góð endurskoðunarvenja sem endurskoðendum ber að fylgja á hverjum tíma. Endurskoðendur skuli fylgja siðareglum alþjóðasamtaka endurskoðenda sem er yfirgripsmikil yfirlýsing um þau gildi og þær meginreglur sem ættu að vera til leiðbeiningar í daglegum störfum endurskoðenda til að viðhalda viðurkenndu verklagi endurskoðendastéttarinnar.

Samkvæmt frumvarpinu eru breytingar á lögum um ársreikninga einnig tvíþættar. Í fyrsta lagi lúta þær að því að innleiða ákvæði um endurskoðunarnefndir sem er að finna í tilskipun 2014/56/ESB og reglugerð Evrópusambandsins nr. 537/2014. Þar er að finna nánari ákvæði um tilnefningu nefndarmanna, hlutverk þeirra og undanþágu dótturfélags að vera með endurskoðunarnefnd eigi móðurfélag 100% hlutafé dótturfélagsins og eftirlitsskyldu endurskoðunarráðs með frammistöðu endurskoðunarnefnda.

Í öðru lagi eru í frumvarpinu lagðar til breytingar til einföldunar á stjórnsýsluframkvæmd mála þar sem lagðar hafa verið á stjórnvaldssektir vegna seinni skila ársreiknings eða samstæðureiknings félags. Lagt er til að ákvarðanir ársreikningaskrár um álagningu stjórnvaldssekta vegna seinni skila ársreiknings séu endanlegar á stjórnsýslustigi en að í undantekningartilvikum geti ársreikningaskrá, berist beiðni frá skilaskyldum aðila, lækkað eða fellt niður stjórnvaldssekt hafi óviðráðanleg atvik sannarlega valdið því að félög hafa ekki staðið skil á ársreikningi eða samstæðureikningi til opinberrar birtingar innan þeirra fresta sem kveðið er á um. Nauðsynlegt þykir að ársreikningaskrá geti tekið tillit til óvæntra eða sérstakra atvika eða aðstæðna sem kunna að koma upp í tengslum við álagningu stjórnvaldssekta.

Virðulegur forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar til umfjöllunar.