154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

Störf þingsins.

[10:53]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Á dögunum sendi ég ríkisstjórninni bréf þar sem ég hvatti til þess að áhersla yrði lögð á að íslenskt regluverk yrði ekki meira íþyngjandi en nauðsynlegt væri við innleiðingu EES-gerða. Að við hættum að gullhúða eða blýhúða. Ég hafði ekki fyrr póstlagt bréfin en tilefni gafst til að brýna þetta fyrir hæstv. ráðherra hér í þingsal í umræðu um breytingu á lyfjalögum.

Ég ræddi þessi mál í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Mér heyrist að á meðan hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson var að leggja sig hafi ég verið vöknuð eldsnemma til að ræða við Bítið. Þar meðtók ég áskorun um að við stoppuðum ekki við það að rýna nýjar reglur heldur réðumst hér í að vinda ofan af löggjöf þar sem hefur verið gengið of langt við innleiðingu. Bítið á Bylgjunni er fyrir mér miklu meira þjóðin eða fólkið heldur en margir stjórnmálamenn sem segjast mjög gjarnan tala fyrir þann hóp, og reyndar var Morgunblaðið á sömu nótum í gær þar sem við þingmenn vorum hvattir til lagahreinsunar af þessu tilefni.

Virðulegi forseti. Á síðasta þingi samþykktum við að vísu skýrslubeiðni hér til hæstv. umhverfisráðherra um úttekt á gullhúðun undanfarinn áratug í hans ráðuneyti. Það bíða örugglega fleiri en ég spenntir eftir niðurstöðunni en við vitum það auðvitað að allt of oft hefur verið gengið allt of langt við innleiðingu á EES-reglum. Ráðherrar og embættismenn hafa freistast til þess að bæta við hinu og þessu sem íþyngir íslensku atvinnulífi og skellt síðan skuldinni á ESB. Ég hef sannarlega fengið verri áskoranir en þessar og held að við ættum að taka hér höndum saman við lager- og lagahreinsanir.