Störf þingsins.
Frú forseti. Við erum fámenn þjóð, lítil þjóð. Við förum sannarlega stækkandi en erum enn þá pínulítil. Fólksfæð fylgja ákveðnar áskoranir; erfitt getur verið að manna lykilstöður og yfirbygging samfélagsins er dýr enda eru verkefnin í litlu samfélagi að jafnaði alveg jafn mörg og flókin og í stóru. Litlu samfélagi geta hins vegar líka fylgt kostir; boðleiðir eru stuttar, nokkuð auðvelt er að ná eyrum þorra þjóðarinnar og upplýsa hana með skjótum hætti, samnýting krafta til þess að sinna ólíkum verkefnum má nýta til þess að auka samfellu í þjónustu ríkisins. Fólksfæð þarf ekki að koma niður á fagmennsku. Það sem einna helst hefur komið mér á óvart eftir að ég hóf störf hér á þingi er hversu lítill metnaður ríkir til þess að gera vel, til þess að nýta reynslu annarra ríkja og fyrirmyndir nema þá með hangandi hendi, helmingurinn tíndur inn og restin kannski seinna, jafnvel þegar um er að ræða heildarmynd sem ekki er hægt að slíta í sundur. Nokkur nýleg dæmi um þetta hafa slegið mig sérstaklega: Auka á vopnaburð lögreglu og heimildir hennar til að fylgjast með almennum borgurum án þess að því fylgi eftirlitið sem tíðkast annars staðar. Flóttafólki er hent út á götuna án þess að fyrir hendi séu önnur úrræði eins og tíðkast annars staðar. Á Íslandi er ekkert, ég endurtek ekkert sem tryggir að lög sem samþykkt eru frá Alþingi standist stjórnarskrá eins og tíðkast annars staðar. Umbylta á ábyrgð heilbrigðisstarfsfólks vegna mistaka, sem ég tel vel, svo að það komi fram, án þess að fyrir hendi sé umboðsmaður sjúklinga eða sambærilegt aðhaldstæki eins og tíðkast annars staðar. Stundum finnst mér jafnvel eins og meiri hlutinn hér á þingi sé bara að gera eitthvað og raunar var því nú fleygt í umræðu um afar illa ígrunduð lög um útlendinga, sem samþykkt voru hér síðasta vor og sannast hefur að voru fullkomið klúður, að það þyrfti að gera eitthvað.
Forseti. Fámenni þarf ekki að koma í veg fyrir fagmennsku. Vöndum okkur og reynum að hugsa hlutina til enda.