154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

bann við hvalveiðum.

99. mál
[11:11]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hæstv. forseti vísar til 13. gr. þingskapalaga fyrir þeirri ákvörðun sinni að heimila ekki flutningsmanni að senda málið í þá nefnd sem flutningsmanni finnst viðeigandi að senda málið í. Að mati þeirrar sem hér stendur þyrftu rökin að vera töluvert meira afgerandi en þau eru þegar við lítum á þetta ákvæði þingskapalaga vegna þess að þar er einfaldlega verið að tala um verksvið hverrar nefndar fyrir sig. Ég held að allir sanngjarnir aðilar gætu komið sér saman um að það er alla vega hvergi alveg skýrt í hvora nefndina þetta ætti að fara. Annars vegar kemur fram að í atvinnuveganefnd sé fjallað um sjávarútvegsmál og nýtingu auðlinda á grundvelli rannsókna og ráðgjafar. Við erum hins vegar að leggja til að hætta að nýta hvali sem auðlind. Síðan er það umhverfis- og samgöngunefnd og þar er talað um umhverfismál — hvalir eru umhverfismál — ráðgjöf, verndun og sjálfbærni á sviði auðlindamála almennt, eitthvað sem við erum hér að vísa í að eigi auðvitað við. Þegar það er ekki svona augljóst, eins og hæstv. forseti virðist halda fram, er mjög skrýtið að verða ekki við einföldum og skiljanlegum óskum flutningsmanns.