154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

bann við hvalveiðum.

99. mál
[11:14]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Jú, það er hægt að segja að þetta mál fjalli um það að leggja niður heila atvinnugrein. Það er líka hægt að segja að þetta mál fjalli um að vernda dýr. Hvort tveggja á alveg rétt á sér sem ákveðin staðhæfing. En hvort er réttara er eitthvað sem við erum að greiða atkvæði um. Frumvarpið er lagt upp með þeim formerkjum að snúast um dýravernd. Það er ýmislegt annað sem er nú þegar bannað með lögum, það má ekki skjóta álftir t.d. eða fálka, eins og var nefnt hérna áðan. Er verið að ganga á atvinnufrelsi manna þegar verið er að banna það að gera þetta á einn veg eða annan, í alvöru? (Gripið fram í: Já, með lögum.) Bara með lögum, einmitt. En við erum samt líka að taka ákvörðun um að vernda þessar tegundir, t.d. frá útrýmingarhættu eins og hefur verið gert með tilliti til þónokkurra tegunda; hafarna, fálka og þess háttar, álfta í gamla daga, spurning hvort það eigi við enn þá eða ekki. (Forseti hringir.) Við þurfum að spyrja okkur þessarar einföldu spurningar: Flutningsmaður leggur málið fram sem dýravelferðarmál. Af hverju er ekki hlustað á það?