bann við hvalveiðum.
Frú forseti. Það hefur verið farið ágætlega yfir þau rök sem hv. þm. Teitur Björn Einarsson nefnir í sinni atkvæðaskýringu í umræðunni. Hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir átti orðastað við hann og benti honum á að fyrir vernd hvala væru almannahagsmunir sem réttlættu takmörkun á atvinnufrelsi samkvæmt stjórnarskrá. Þingmanninum var bent á að lesa bara ákvæðið til enda og þá myndi þetta nú allt opinberast.
En mig langar að spyrja forseta í ljósi orða hv. þingmanns — við sáum það í sumar að Teitur Björn Einarsson lætur tilfinningarnar hlaupa með sig í gönur í þessu máli, hann gekk ansi langt í að gagnrýna ráðherra í ríkisstjórn sinni þegar hvalveiðar bar á góma í sumar — hefði forseti ekki mátt ávíta hv. þingmann fyrir að saka þau okkar sem stöndum að þessu máli um að ganga bersýnilega gegn stjórnarskrá? Það eru ekki mörg skýr ákvæði í þingsköpum en ég held að þetta sé eitt af þeim sem gefi tilefni til ávítna.