154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

Mannréttindastofnun Íslands.

239. mál
[11:44]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Kannski bara til að dýpka aðeins það sem ég sagði í fyrra svari varðandi persónulega talsmenn, ég held að það sé bara mjög sjálfsagt að nefndin fari yfir það og þessi kortlagning stendur yfir á þeirra stöðu með fulltrúum félagsmálaráðuneytis og dómsmálaráðuneytis, sem þessi mál heyra undir. Það hefur verið okkar skilningur að það sé forsenda að persónulegir talsmenn séu til staðar en hvað varðar greiðsluna þá eru kannski einhver álitamál uppi um það hvort það sé forsenda þess að unnt sé að lögfesta sáttmálann. En ég held að það sé ráðlegt að þetta verði tekið til skoðunar við þinglega meðferð.