154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

Mannréttindastofnun Íslands.

239. mál
[11:48]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Auðvitað snýr þetta mál að því eða er a.m.k. lagt þannig upp að það snúi að því að uppfylla skuldbindingar en við sníðum okkur stakk eftir vexti. Það gilda ekki sömu lögmál um okkar litlu stjórnsýslu og okkar takmörkuðu fjárráð og gilda um samanburðarlönd sem m.a. hafa verið nefnd hérna af hæstv. ráðherra og er gert í greinargerð. Annars bíð ég bara spennt eftir að heyra síðara andsvar hæstv. ráðherra varðandi réttindagæsluna.