154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

Mannréttindastofnun Íslands.

239. mál
[11:49]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Aðeins um réttindagæslumennina. Það hefur lengi verið ljóst að það þarf að breyta því fyrirkomulagi sem nú ríkir um réttindagæslumenn fatlaðs fólks. Þeirra hlutverk er auðvitað fyrst og fremst annars vegar að tryggja réttindi fatlaðs fólks, þeir hafa í raun og veru eftirlit með því að réttindi þeirra séu uppfyllt og að veita þeim leiðsögn um sín réttindi. Ég tel að núverandi fyrirkomulag, þar sem þeir heyra undir félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, tryggi ekki sjálfstæði þessara réttindagæslumanna.

Hins vegar langar mig, bara út af umræðu hv. þingmanns, sem á fullan rétt á sér, um hvort það sé þörf á nýrri stofnun, að vekja athygli á því að við erum að færa verkefni til í kerfinu. Það er það sem við erum að gera. Við erum ekki að stofna nýja stofnun frá grunni og ég tel að það komi vel til greina að færa fleiri verkefni sem nú er sinnt af öðrum stofnunum eða ráðuneytum yfir til þessarar nýju stofnunar. Alþingi gæti við þinglega meðferð þessa máls lagt þá skyldu á herðar okkar að skoða, í einhvers konar bráðabirgðaákvæði, hvort mögulega mætti færa fleiri verkefni til þessarar stofnunar. Þetta er það sem við leggjum upp með en ég held að þetta tryggi alveg það ágæta markmið að tryggja skilvirkni í ríkisrekstri (Forseti hringir.) sem er kannski svona hið yfir- og alltumlykjandi markmið sem hv. þingmaður vísar í.