154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

Mannréttindastofnun Íslands.

239. mál
[11:51]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég fór sjálf ítarlega yfir það í minni framsögu að það væri heilmikill aðdragandi að þessu máli og ekki aðeins frá 2019 heldur frá 2016 þegar fyrstu áform voru kynnt. Þessi málaflokkur fluttist yfir til forsætisráðuneytisins 2021 og ástæða þess að ég kem með þetta frumvarp nú í septembermánuði 2023 er að ég taldi rétt að við færum í ákveðna heildarkortlagningu á stöðu mannréttindamála á Íslandi áður en slíkt frumvarp kæmi fram. Við nýttum tímann 2022–2023, þann vetur, til þess að ráðast í grænbókarvinnu um stöðu mannréttinda sem ég held að sé gríðarlega mikilvæg undirstaða fyrir þessa vinnu því að þó að margt hafi verið unnið og stóru línurnar, eins og ég kom að í mínu máli, séu í samræmi við það sem fyrrum hæstv. dómsmálaráðherrar hafa lagt til þá held ég að þessi vinna hafi skilað því að frumvarpið núna er þéttara en það áður var.