154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

Mannréttindastofnun Íslands.

239. mál
[11:52]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég heyri ekki betur en að raunveruleg vinna við þessa stofnun hafi hafist þegar hæstv. ráðherra tók við. Kannski að einhverju leyti af því tilefni langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort það séu einhverjir fyrirvarar við málið af hálfu annarra stjórnarflokka eða hvort málið njóti stuðnings Sjálfstæðisflokksins eða við hvort við megum eiga von á því að þetta mál fari í tætarann í vor eins og önnur ágreiningsmál og kannski öll helstu prinsippmál Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.

Þá langar mig líka að spyrja hæstv. ráðherra út í það sem kom fram í hennar framsöguræðu varðandi það að það séu möguleikar á því að stofnunin verði færð undir eitthvað annað en Alþingi, ráðherra talar þar eins og meiri hluti Alþingis hafi eitthvert sjálfstæði gagnvart ríkisstjórninni sem við höfum nú svo sem ekki orðið vör við mikið af þessu kjörtímabili, hvort þar sé hæstv. ráðherra að opna á einhvers konar málamiðlunartillögu við Sjálfstæðisflokkinn.