154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

Mannréttindastofnun Íslands.

239. mál
[11:53]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Auðvitað er nú margt kúnstugt hér. Ég ætla ekki að eyða tíma þingsins í að fara yfir þau mál sem Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur náð í þessu stjórnarsamstarfi. En hv. þingmaður veit auðvitað miklu betur en hún kýs að segja hér. Þetta frumvarp er komið fram. Það er hluti af stjórnarsáttmála og ég hef því ekki trú á neinu öðru en að allir stjórnarflokkarnir standi á bak við frumvarpið. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins setti fyrirvara við frumvarpið og ég vænti þess að þau geti bara gert grein fyrir þeim sjálf.

Þegar ég opna á þetta vil ég bara segja að ég hafði samráð við forseta þingsins. Ég sendi frumvarpið til forsætisnefndar Alþingis og bauð upp á samtal um það að forsætisnefnd flytti málið ef vilji væri fyrir því. Það var ekki svo og því flyt ég hér málið. En að sjálfsögðu vil ég bara ítreka það, og er bara mikill talsmaður þingsins í þessu máli, því að ég er hér að leggja til að þessi stofnun heyri undir þingið, en það sem ég er einfaldlega að segja, og það er mín einlæga sannfæring — auðvitað á þingið lokaorðið um það — er að þessi stofnun eigi að heyra undir þingið og ég held að það sé langbest.