Mannréttindastofnun Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir ræðu sína. Ég er sammála honum varðandi sjálfstæðið, að þetta eru ekki nægileg rök. Ég get bent á eina stofnun sem er sjálfstæð, það er náttúrlega ríkissaksóknari. Það er vissulega rétt að öll mannréttindabrot þurfa ekki að fara fyrir dómstóla og við erum með umboðsmannakerfi og eitt af baráttumálum Flokks fólksins er að koma á fót umboðsmanni aldraðra eða talsmanni aldraðra. Ég tel að mjög mikilvægur hluti hér sé ákvæðið um réttindagæslumenn fyrir fatlað fólk, það er mjög mikilvægt ákvæði.
Ég er sammála, ég tel að þetta mál ætti heima hjá allsherjar- og menntamálanefnd. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann að og ég er mjög forvitinn að fá að vita, er hver skoðun hv. þingmanns er á því að hér sé verið að stofna nýja stofnun. Nú veit ég að hans pólitíska sýn er sú að við eigum ekki að hafa ríkisvaldið úti um allt og fjölgun stofnana er ekki á stefnuskrá flokks hans. Væri þetta ekki betur komið annars staðar, með sameiningu við Mannréttindaskrifstofu Íslands? Er hér ekki bara einfaldlega verið að stofna nýja örstofnun? Það kemur ekkert fram um fjölda starfsmanna né neitt slíkt.
Varðandi hlutverkið þá get ég ekki séð að það sé nægilega vel skilgreint fyrir utan réttindagæslu fatlaðs fólks, mér leikur hugur á að vita það, en það er kannski ekki hv. þingmanns að svara því. En kjarni málsins er að þessi stofnun er ný stofnun undir Alþingi og svo er það líka sjálfstæðið. Nú er þetta stjórnarfrumvarp. Er Sjálfstæðisflokkurinn ekki heill að baki þessu frumvarpi eins og hæstv. forsætisráðherra mælti fyrir því?