Mannréttindastofnun Íslands.
Herra forseti. Það er nú einu sinni þannig að menn geta haft athugasemdir við stjórnarfrumvarp og talið að það eigi í þinglegri meðferð að taka breytingum. Ég hef ágæta reynslu af því t.d. að fást við hæstv. forsætisráðherra, bæði sem ráðherra en líka sem samnefndarmann í skemmtilegustu og bestu nefnd sem til er á þinginu, sem er efnahags- og viðskiptanefnd. Þar vorum við að takast á við stjórnarfrumvörp og vorum að vinna að breytingum á þeim. Hluti af því að stjórnarfrumvörp eru lögð fyrir þingið er að þau kunna að taka breytingum, annars þyrfti ekki þingið, annars væru bara stjórnarfrumvörpin gefin út og þau yrðu að lögum o.s.frv. Þannig að þetta er fullkomlega eðlilegt. Ég hef ákveðnar athugasemdir við þetta frumvarp sem ég fór yfir hér áðan og ég taldi mig gera það með sæmilegum hætti, en það er kannski ekki í fyrsta skipti sem ég tala ekki nægjanlega skýrt. Ég hefði talið betra, í stað þess að koma á fót nýrri stofnun, að það hefði verið fundin leið til að finna annarri stofnun þetta verkefni og þá staldra ég t.d. við Jafnréttisstofu og breyta þá umsvifum hennar og heiti o.s.frv. Það kann að vera að ég sé á villigötum. En þetta kemur alveg örugglega allt fram þegar við förum að kljást við þetta merkilega frumvarp vegna þess að það er mjög merkilegt og það er mikilvægt að við tökumst á við að afgreiða það með sómasamlegum hætti.
Hitt er annað mál að mér finnst að það sé kannski verið að reyna að finna lausn á vanda þegar kemur að réttindagæslumönnum fatlaðra (Forseti hringir.) og ég hef ákveðnar áhyggjur af því að þetta sé talin vera rétta leiðin.