154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

Mannréttindastofnun Íslands.

239. mál
[12:20]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Nú skulum við hafa þetta á hreinu. Ráðherra leggur fram í ríkisstjórn frumvarp. Ríkisstjórnin samþykkir það frumvarp, þ.e. samþykki fyrir sitt leyti að frumvarpið skuli lagt fram. Frumvarpið fer þá til þingflokka stjórnarflokkanna, þeir fjalla um það, rýna það og eftir atvikum gera þeir fyrirvara sem geta verið efnislegir. Ég gerði grein fyrir efnislegum fyrirvörum við þetta frumvarp en um leið taldi ég mig hafa verið alveg skýran í því að ég tel að þetta sé mikilvægt frumvarp og það sé mikilvægt að það fái efnislega umfjöllun í þinginu. Ég ætlast auðvitað til þess og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins ætlast til þess að það sé a.m.k. fjallað um þá efnislegu fyrirvara sem við höfum gert við þetta frumvarp. Þannig vinna allir þrír ríkisstjórnarflokkarnir, hver með sínum hætti og ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að þetta mál fái mjög farsælan endi sem verður okkur öllum til sóma.